Hvimleiðir sauðir kvelja Króksara
Herra Hundfúll bíður að sjálfsögðu spenntur eftir að sjá skagfirsku kvenskörungana takast á við lið Grindavíkur í spurnigaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu. Meira…
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera í pólitík
Herra Hundfúlum finnst aldeilis vera sviptingar í pólitíkinni þessa síðustu. Ekki er langt síðan það þótti ófínt fyrir stjórnmálamenn að vera múlbundnir af forystumönnum sínum. Menn áttu að láta eigin samvisku ráða í málum. Nú hafa orðið endaskipti á þessari tískubólu og þeim sem fylgja samviskunni hótað mörgu illu og jafnvel líkt við hinn norska Quisling. Það er vandlifað.
Strákarnir okkar standa í stórræðum á EM í Serbíu
Íslenska handboltalandsliðið stendur í stórræðum á erlendri grundu næstu dagana, nánar tiltekið í Vrsak. Handboltastrákarnir hafa oftar en ekki glatt landa sína með ágætum og stundum frábærum árangri. Herra Hundfúll er þó á því að þessar sjónvarpsauglýsingar þar sem landsliðsmennirnir eru sýndir í gríðarlegum dýrðarljóma séu nú svolítið tú möds og ekki laust við að kjánahroll setji að honum. Hundfúll sendir þó baráttukveðjur og vonar að Ísland standi sig vonum framar. Áfram Ísland!
Stofnar í útrýmingarhættu
Herra Hundfúll hefur furðað sig talsvert á því að tal um friðun á svartfugli hefur farið illa í Skagfirðinga – kannski ekki alla, en einhverja. Hundfúll fór síðan að velta því fyrir sér hvort það gæti verið að það sama gildi um svartfuglinn og framsóknarmenn. Semsagt; stofninn virðist í útrýmingarhættu en aldrei hefur verið meira af þeim í Skagafirði. – Kannski er þörf á að friða báðar tegundir?
Skref aftur á bak hjá Sjónvarpinu
Hvar er hvar er hvar er hvar er flaskan mín?
Herra Hundfúll hefur alveg frá unga aldri átt í sérstöku sambandi við Nóa og Síríus jólakonfektið og sennilega ekki einn um það. Og alveg frá fyrstu tíð hafa innpökkuðu molarnir í glansbréfinu verið í sérstöku uppáhaldi. Herra Hundfúll er því sár og svekktur núna þegar þeir félagar Nói og Síríus hafa tekið þá fáránlegu ákvörðun að hætta að setja rommflöskurnar sykursætu í kílóakassana á þeim forsendum að þær eigi það til að brotna. Hundfúll man ekki eftir brotinni flösku í þessum kössum og finnst nánast sem brotin séu á sér mannréttindi með þessari ákvörðun. Flöskuna aftur á sinn stað!
Nú er fokið í skjólin flest
Herra Hundfúll, sem jafnan er erfitt að gleðja, er óskaplega ánægður með að Feykir skuli uppfylla þarfir hans varðandi slúður um fína og fræga fólkið í útlöndum. Um það má lesa í Gagnslausa horninu. Meira…
Dælurnar öflugri með hverju árinu
Þau eru víða ástöndin
Önnur systirin hætt
Óþolandi alltaf þessi handbolti
Herra Hundfúll – eða Herra Handfúll – var alveg harðákveðinn í því fyrir HM í handbolta að sleppa því alveg að fylgjast með þessu handboltalandsliði Íslands sem árlega leggur taugakerfi landans í rúst. Gekk jafnvel svo langt að Hundfúll var að hugsa um að segja upp Stöð2 Sport en það hefði auðvitað þýtt að einhvern fótbolta hefði vantað í sjónvarpið svo sú hugmynd var ekki að fúnkera. Meira…
Bragðvond Kryddsíld
Að venju söfnuðust stjórnmálaforingjar saman í Kryddsíld á Stöð 2 á gamlársdag þar sem kveðja átti gamla árið og ræða málin sem brenna á fólki. Það kom sennilega engum á óvart að samræðurnar voru út og suður og lítið annað endurteknar og óspennandi orðskylmingar sem gerðu lítið annað en ergja þá sem nenntu að horfa á þáttinn. Herra Hundfúll var í það minnsta ekki spenntur og spyr hvort ekki sé rétt að fara með þennan þátt í aðra átt? Reyna að taka upp léttara hjal þannig að fólk fái að sjá aðra hlið á þessum “foringjum” – en kannski er þessu fólki bara fyrirmunað að koma saman öðruvísi en að þeirra kappsmál sé að moka sem mestum skít á viðmælendur sína?
Kosningar til Stjórnlagaþings slá ekki beinlínis í gegn
Herra Hundfúll skemmtir sér ágætlega við að hlusta á skýringar á lélegri þátttöku í kosningum til Stjórnlagaþings. Bendir nú hver á annan í leit að sökudólgum.
-Ríkisútvarpið stóð sig ekki nógu vel við að kynna alla rúmlega 500 frambjóðendurna, Gunnar í Krossinum stal senunni, stjórnmálafræðingurinn Gunnar Helgi í Háskólanum hræddi fólk frá þátttöku þegar hann sagði kosningarnar vera flóknar og þá var ritstjóri Moggans með alkunn leiðindi og ósanngirni. Einhverjir voru svo fífldjarfir að segja frambjóðendur hafa klikkað á að kynna sig. Já og Háskóli Íslands hélt ekki málþing um stjórnarskrána. Öss!
-En hafði fólk kannski lítinn áhuga á kosningunum? Hefur fólk almennt þekkingu á stjórnarskránni? Eða raunverulegan áhuga? Getur fólk á skömmum tíma gert upp á milli rúmlega 500 frambjóðenda og stefnu þeirra varðandi stjórnarskrá Íslands? Fannst fólki kosningarnar kannski vera tóm vitleysa, peningaeyðsla og húmbúkk á tímum niðurskurðar og sparnaðar?
-Ekki bætti úr skák að frambjóðendum var uppálagt að nota helst ekki meira en 2 milljónir til að kynna sig. Það var sagt gert til að jafnræðis væri gætt (sem er undarlegt þegar sumir höfðu þjóðþekktari andlit og skoðanir en aðrir og hafa kannski notið þess). En kannski voru bara frambjóðendurnir svo óspennandi að meirihluti þjóðarinnar – þjóðar sem er alla jafna dugleg að mæta á kjörstað – stóð annað hvort á sama um kosningarnar eða hreinlega nennti ekki á kjörstað?
-Herra Hundfúll er með athyglisverða tilgátu: Veðrið klikkaði. Það var alltof gott á kjördag.
Gegn einelti
Herra Hundfúll er ekki par hrifinn af hugmyndum um að skera niður fjárveitingar til Heilbrigðisstofnana á Norðurlandi vestra. Nóg var skorið á síðasta ári en nú er hugmyndin að gera enn betur (eða verr). Nú er stefnt að 33% niðurskurði á Króknum og 16% á Blönduósi. Þetta er ekkert annað en einelti og ætti að kæra undir eins!
Góðir Poolarar
Ættartengsl
Fótboltanöldur
Nú hafa Tindastólsmenn lokið leikjum sínum í C-riðli 3. deildar og ljóst að liðið endar í fyrsta eða öðru sæti riðilsins. Vanalega er það þannig að síðustu leikir liðanna í deild eru spilaðir sama dag svo eitt lið hafi ekki ávinnig af stöðu sinni, eins og til dæmis lið KB hefur núna gagnvart Stólunum. Meira…
Úrslitin á HM ráðast í kvöld
Herra Hundfúll henti saman tveimur vísum í nótt og kannski ekki verulega góðum. Svona til útskýringar er kannski rétt að segja frá því að Palli blaðamaður Friðriks spáir líkt og nafni hans, Páll kolkrabbi frá Þýskalandi, Spánverjum sigri gegn Hollendingum á HM í kvöld og fjallar fyrri vísan um það. Meira…
Eitthvað fyrir alla á HM
Það er slatti af fótbolta í sjónvörpum landsmanna og ekki sér Herra Hundfúll annað en að allir gláparar ættu að geta verið sáttir við sitt. Tónlistarunnendur fá blásturstónleika í beinni (að vísu nokkuð eintóna), þeir sem eru gefnir fyrir dramatík og njósnaþætti geta fylgst með prímadonnunum í franska landsliðinu, handboltaáhugamenn gætu lært margt af Fabiano hinum brasilíska og þeir sem eru fyrir grínið horfa vitaskuld á ensku klaufabárðana en þar eru sannarlega einhverjir fremstu grínarar heims á ferðinni. -Hvað er fólk svo að kvarta yfir dagskránni?
Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
Erlendur Guðjónsson hefur lengi glímt við baðvigtina en konu hans, Sigríði Guðfinnu Hjálmarsdóttur, finnst Lendi ekki vera brúklegur til meiri- eða minniháttar ævintýra eins og að ganga með sér Laugaveginn svo dæmi sé tekið. Nú er svo komið að Lendi … lesa meira
- Ef heit pera brotnar – yfirgefðu herbergið í 30 mínútur
- Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
- 33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
- Hrossarekstur í Vatnsdal
- Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
- Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
- Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
- Igor Tratnik kemur á Krókinn
- Vildarvinakort fótboltadeildar Tindastóls
- Atskákmót Sauðárkróks
- Drengjaflokkur Tindastóls tekur á móti Skallagrím í kvöld
- Íslandsmót meistaraflokks karla í fótbolta hefst 12. maí
- Stóðu sig vel á Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum
- Helga Margrét komin á fullt skrið
- Fáum unga fólkið í Skagafjörð
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Útrýming Vestfirðinga gengur vel og stenst áætlun stjórnvalda
- Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta
- 23 útgerðarmenn – loðnir um lófana
- Falsspámenn
- Drög að nýjum vopnalögum er fjalla um búnað til að stunda bogfimi hverskonar
- Hvað gerir nýr sjávarútvegsráðherra?
Hvimleiðir sauðir kvelja Króksara
Herra Hundfúll bíður að sjálfsögðu spenntur eftir að sjá skagfirsku kvenskörungana takast á við lið Grindavíkur í spurnigaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu.
Ýmislegt sem kemur í ljós í hlákunni
Frú Frábær er alveg í skýjunum eftir hlákuna sem ríkt hefur undanfarið því eftir að snjórinn fór kom snjóskóflan hennar í ljós sem sennilega hafði fennt í kaf í nóvember. Ekki nóg með það því iðnaðarsaltið sem hún tók úr kryddhillunni og saltaði bílastæðið og tröppurnar með í byrjun janúar fannst líka. –Ef þetta heldur svona áfram á ég kannski von á af finna manninn minn í einhverjum skaflinum en hann hefur ekki sést síðan þorrinn hófst. Alveg frábært ef það gerðist.














