Áströlsk bomba með heitri sósu
Margrét Sigurðardóttir dýralæknir og Vésteinn Vésteinsson rafeinda- og mjólkurróbótavirki Varmahlíð buðu lesendum Feykis upp á dýrindis uppskriftir í janúar 2009. Þau skoruðu á Sigfríði Halldórsdóttur og Kára Gunnarsson í Varmahlíð að koma með næstu uppskriftir. Meira…
Grillaðar hrossalundir – hrikalega gott og fljótlegt. Matgæðingar 2. tbl. 2009
Það eru þau Bergur Gunnarsson og Rósa María Vésteinsdóttir bændur á Narfastöðum í Skagafirði sem bjóða lesendum Feykis upp á dýrirndis uppskriftir og láta eftirfarandi fylgja með. Hér á norðurlandi er all víða ræktuð hross og þar sem efniviðurinn verður ekki alltaf að gæðingum fannst okkur upplagt að koma með aðalrétt sem hent gæti Skagfirsku matarkistunni. Alls ekki illa meint en gott með í úrvinnslunni. Meira…
Léttir réttir eftir hátíðarnar. Matgæðingar 1. tbl. 2009
Það eru þau Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri BioPol sem láta okkur fá uppskriftir að þessu sinni. Að þeirra sögn tóku þau þann pól í hæðina að vera ekki með stórsteikur þar sem flestir hafa líklega fengið nóg af þeim að undanförnu. Sigríður og Halldór skora á Helgu Ólínu Aradóttur sérkennara á Skagaströnd að koma með næstu uppskriftir. Meira…
Hvað á að gera við afgangana?
Ef ekki er þegar búið að klára jólamatinn og stemning ekki góð fyrir köldum sneiðum af hangikjötinu eða hamborgarhryggnum eru ýmsar leiðir til að galdra upp nýjan matseðil úr afgöngunum. Það er sannarlega hægt að gera fleira en að bera kjötið fram kalt eða hita það í tartalettum. Á Lambakjöt.is segir að margar uppskriftir sem ætlaðar eru fyrir skinku, hamborgarhrygg eða annað reykt svínakjöt henti ágætlega fyrir hangikjöt líka og það er óhætt að leyfa hugmyndafluginu að ráða svolítið. Meira…
Gómsæt önd í appelsínusósu í aðalrétt
Það voru hjónin Guðmundur Kristján Hermundsson og Nanna Andrea Jónsdóttir á Sauðárkróki sem buðu upp á nokkrar girnilegar uppskriftir í árslok 2008. Þau skoruðu á hjónakornin á Narfastöðum þau Rósu Maríu Vésteinsdóttur og Berg Gunnarsson að koma með næstu uppskrift úr Skagafirði. Meira…
Fylltar kjúklingabringur og frönsk súkkulaðikaka – Matgæðingar vikunnar
Að þessu sinni eru það Aðalheiður Sif Árnadóttir og Róbert Freyr Gunnarsson á Skagaströnd sem bjóða upp á girnilegar fylltar kjúklingabringur og franska súkkulaðiköku í eftirrétt. Aðalheiður og Róbert voru matgæðingar Feykis fyrir þremur árum og skoruðu þau á hjúkrunarfræðinginn Sigríði Stefánsdóttir og sjávarútvegsfræðinginn Halldór Gunnar Ólafsson að koma með næstu uppskrift. Meira…
Parmaskinkuvafinn humar
Sólveig Bergland Fjólmundsdóttir og Rúnar S. Símonarson láta okkur hafa einstaklega girnilegar uppskriftir að þessu sinni. Sólveig og Rúnar voru matgæðingar Feykis í 45. tbl. árið 2008 og skoruðu þau á þau Nönnu Andreu Jónsdóttur og Guðmund Kr. Hermundssson Víðihlíð 5 Sauðárkróki, að koma með næstu uppskriftir. Meira…
Grafnar rjúpnabringur, skarfabringur og ís
Nú eru það Stefán Sveinsson og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir á Skagaströnd sem bjóða okkur upp á sérdeilis góðar villibráðauppskriftir og heimalagaðan ís í eftirrétt. Þau voru matgæðingar Feykis fyrir þremur árum og skoruðu á Aðalheiði Sif Árnadóttur, pylsusala og íþróttafrík og Róbert Frey Gunnarsson lögregluþjón að verða næstu matgæðingar ú Húnavatnssýslu. Meira…
Mjólkurfræðingurinn mælir með osti, rjóma og smjöri
Nú fáum við að njóta uppskrifta frá Aðalheiði Hallmundsdóttur og Hilmars Baldurssonar á Sauðárkróki. Þar sem Hilmar er mjólkurtæknifræðingur að aðalstarfi, aðhyllist öll eldamennska hjá honum að hráefni úr heimabyggð og þá sérstaklega osti, rjóma og smjöri. Þau Aðalheiður og Hilmar voru matgæðingar Feykis seint á árinu 2008 og þau skoruðu á Rúnar Símonarson og Sólveigu Fjólmundsdóttur á Sauðárkróki að koma með uppskriftir að tveimur vikum liðnum. Meira…
Hörpuskel, humar og heimalagaður ís
Það voru þau Péturína Jakobsdóttir, akstursíþróttamaður ársins 2001og skrifstofustjóri hjá Léttitækni og hennar ektamaki Reynir Lýðsson, Strandamaður og stöðvarstjóri Fiskmarkaðarins á Skagaströnd sem töfruðu fram meistararétti úr sjávarfangi fyrir réttum 3 árum. Þau skoruðu á Stefán Sveinsson stórverktaka og veiðimann og Hafdísi Hrund Ásgeirsdóttir skipulagsséní og hársnyrtisvein á Skagaströnd að koma með uppskriftir í Feyki að tveimur vikum liðnum. Meira…
Fyllt geitalæri í aðalrétt
Heiðrún Guðmundsdóttir Herbalife dreifingaraðili og Rúnar Jónsson bifvélavirki á Sauðárkróki gáfu lesendum Feykis gómsætar uppskriftir fyrir sléttum þremur árum. Það er ekki oft sem fólk er með geitakjöt í uppskriftum en hér er það í aðalrétt. Heiðrún og Jón skoruðu á Hilmar Baldursson og Aðalbjörgu Hallmundsdóttur, Grenihlíð 4 á Sauðárkróki að koma með uppskriftir að tveimur vikum liðnum. Meira…
Athyglisverður forréttur
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir og Þröstur Árnason frá Skagaströnd buðu lesendum Feykis upp á dýrindis uppskriftir fyrir réttum þremur árum síðan en forrétturinn þeirra, marineraða lúðan/ýsan, vakti mikla athygli lesenda. Þau Vigdís og Þröstur skoruðu á Péturínu Laufeyju Jakobsdóttur, aksturíþróttamann ársins 2001, leikkonu og skrifstofustjóra hjá Léttitækni og Reynir Lýðsson, Strandamann, bjargvætt og stöðvastjóra fiskmarkaðsins á Skagaströnd að koma með uppskrift tveimur vikum síðar. Meira…
Karrýkjúklingur og syndin ljúfa
Hafþór Gylfason yfirmatsveinn á Hafrúnu HU 12 frá Skagaströnd og Sigþrúður Magnúsdóttir starfsmaður Samkaupa á Skagaströnd og spákona voru matgæðingar Feykis í 38. tbl. árið 2008. „Með hliðsjón af bágu efnahagsástandi er ekki gert ráð fyrir forrétti en eftirrétturinn bætir það upp“, sögðu þau en þá gekk ýmislegt á í þjóðfélaginu eins og menn vita. Meira…
Litla syndin ljúfa er ómótstæðileg
Þröstur Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki buðu lesendum Feykis upp á dýrindis uppskriftir á haustmánuðum 2008. Litla syndin ljúfa er sá eftirréttur sem þeim þykir hvað ómótstæðilegust. Þau skoruðu á Kára H Árnason og Margréti G Helgadóttur á Sauðárkróki að koma með uppskriftir að tveimur vikum liðnum. Meira…
Matgæðingar vikunnar – Sinnepslúða með sítrónu
Í 35. tbl Feykis árið 2008 buðu matgæðingarnir Eva Gunnarsdóttir og Guðjón Jónsson frá Sturluhóli upp á gómsætan lúðurétt með tilheyrandi forréttarsúpu og eftirrétt sem bráðnar í munni. Þau skoruðu á Hafþór Gylfason og Sigþrúði Magnúsdóttur Sunnuvegi 11 Skagaströnd að koma með uppskrift að tveimur vikum liðnum. Meira…
Rækjur, kjúklingabringur og myntudraumur.
Það eru þau Sólveig Arna Ingólfsdóttir og Andrés Geir Magnússon á Hellulandi í Hegranesi sem gefa lesendum Feykis.is kost á að galdra fram veislu á auðveldan hátt. Þau voru í 34 tbl. Feykis árið 2008 og skoruðu þau á Kolbrúnu Jónsdóttir og Þröst Jónsson á Sauðárkróki að koma með uppskrift að tveimur vikum liðnum. Meira…
Grillaður Kúalubbi
Magnús Jósepsson og Líney Árnadóttir á Steinnesi buðu lesendum upp á skemmtilegar og frumlegar uppskriftir í 34. tbl. feykis árið 2008. Kúalubbi á rist, kjúklingur í kókosmjólk og epli í kókosskel var á boðstólnum að þessu sinni. Meira…
Humar, skötuselur og guðdómleg súkkulaðikaka
Fyrstu vikuna í september 2008 voru það Ingólfur Arnarson og Kristín Jónsdóttir á Sauðárkróki sem buðu lesendum Feykis upp á gómsæta rétti. Þau völdu hráefnið úr sjónum að þessu sinni og eftirrétturinn var guðdómlegur. Meira…
Erla og Stefán kokka
Þau Erla Ísafold Sigurðardóttir og Stefán Ólafsson á Blönduósi voru matgæðingar vikunnar í Feyki í mars 2008 og buðu lesendum upp á humar, kjúkling og kókosbollueftirrétt. Meira…
Girnilegir uppáhaldsréttir
Í upphafi ársins 2008 áttu þau Dagný Huld Gunnarsdóttir og Hjörtur Elefsen uppskriftir vikunnar í Feyki. Uppskriftirnar sem þau buðu upp á eru hver annari girnilegri og í miklu uppáhaldi hjá þei Dagnýju og Hirti. Meira…
Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
Erlendur Guðjónsson hefur lengi glímt við baðvigtina en konu hans, Sigríði Guðfinnu Hjálmarsdóttur, finnst Lendi ekki vera brúklegur til meiri- eða minniháttar ævintýra eins og að ganga með sér Laugaveginn svo dæmi sé tekið. Nú er svo komið að Lendi … lesa meira
- Ef heit pera brotnar – yfirgefðu herbergið í 30 mínútur
- Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
- 33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
- Hrossarekstur í Vatnsdal
- Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
- Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
- Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
- Igor Tratnik kemur á Krókinn
- Vildarvinakort fótboltadeildar Tindastóls
- Atskákmót Sauðárkróks
- Drengjaflokkur Tindastóls tekur á móti Skallagrím í kvöld
- Íslandsmót meistaraflokks karla í fótbolta hefst 12. maí
- Stóðu sig vel á Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum
- Helga Margrét komin á fullt skrið
- Fáum unga fólkið í Skagafjörð
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Útrýming Vestfirðinga gengur vel og stenst áætlun stjórnvalda
- Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta
- 23 útgerðarmenn – loðnir um lófana
- Falsspámenn
- Drög að nýjum vopnalögum er fjalla um búnað til að stunda bogfimi hverskonar
- Hvað gerir nýr sjávarútvegsráðherra?
Hvimleiðir sauðir kvelja Króksara
Herra Hundfúll bíður að sjálfsögðu spenntur eftir að sjá skagfirsku kvenskörungana takast á við lið Grindavíkur í spurnigaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu.
Ýmislegt sem kemur í ljós í hlákunni
Frú Frábær er alveg í skýjunum eftir hlákuna sem ríkt hefur undanfarið því eftir að snjórinn fór kom snjóskóflan hennar í ljós sem sennilega hafði fennt í kaf í nóvember. Ekki nóg með það því iðnaðarsaltið sem hún tók úr kryddhillunni og saltaði bílastæðið og tröppurnar með í byrjun janúar fannst líka. –Ef þetta heldur svona áfram á ég kannski von á af finna manninn minn í einhverjum skaflinum en hann hefur ekki sést síðan þorrinn hófst. Alveg frábært ef það gerðist.














