Söngur og salsadans á Valentínusardegi á Hólum
Í tilefni Valentínusardagsins sl. þriðjudag stóð Ferðaþjónustan á Hólum, í samstarfi við nemendur Ferðamáladeildar, fyrir Kærleiksrölti um Hólastað sem innihélt m.a. leiðsögn, kærleikskvöldverð og uppákomur fyrir alla fjölskylduna. Að sögn Hildar Þóru Magnúsdóttur rekstrarstjóra Ferðaþjónustunnar á Hólum gekk viðburðurinn frábærlega í alla staði. Mikill fjöldi fólks tók þátt í röltinu og voru rúmlega 50 manns sem gæddu sér á smáréttahlaðborði Byrðunar eftir röltið. Meira…
Ein mínúta í viðbót og þá hefðu Keflvíkingar legið í valnum
Tindastólsmenn geta gengið fjallbrattir frá fyrsta úrslitaleik sínum í Powerade bikarkeppni KKÍ sem háður var síðastliðinn laugardag þrátt fyrir tap. Keflvíkingar náðu yfirhöndinni um miðjan fyrsta leikhluta og þrátt fyrir ágæta takta þá náðu Stólarnir aldrei almennilega í skottið á Suðurnesjapiltunum. Þeir voru þó allan tímann inni í leiknum og góður fjórði leikhluti dugði ekki til, munurinn varð minnstur 2 stig og það var eftir fáránleikakörfu Þrastar Leós á síðustu sekúndunni. Lokatölur 97-95 fyrir Keflavík. Meira…
Magnaðar myndir úr Skagafirði
Árni Rúnar Hrólfsson á Sauðárkróki hefur verið að dunda sér við að gera stutt myndbönd um náttúrunna í Skagafirði veturinn 2011-2012. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast magnað myndband sem sýnir sjónarspil ljósa og náttúru og kallar Árni myndbandið Fallegi Skagafjörður. Meira…
Fríður barnahópur söng fyrir búðargesti
Nemendur á eldra stigi leikskólans Ársala tóku lagið í Skagfirðingabúð í tilefni degi leikskólans. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land þann 6. febrúar en sama dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Meira…
Fjölmenni á Króksblóti í gærkvöldi
Króksblót 2012 fór fram í gærkvöldi í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og var það árgangur 1959 sem hélt utan um skemmtunina þetta árið.
Aðstaðan var hin besta og húsið allt hið glæsilegasta og ekki skorti fólkið, 550 plús gæddu sér á gómsætum þorramat en hermt er að þriðjungur Skagfirðinga hafi mætt á þorrablót í gærkvöldi á þeim þremur blótum sem fram fóru. Meira…
Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. Meira…
Skagafjörður í vetrarbúningi
Fjörðurinn skartaði sínu fegursta í vetrarbúningnum þegar blaðamaður Feykis átti leið um austanverðan Skaga í síðustu viku. Meira…
Mikið um dýrðir á Vínarkvöldi Karlakórsins Heimis
Mikið var um dýrðir á Vínarkvöldi Karlakórsins Heimis í Miðgarði í gærkvöldi en þar komu fram, ásamt Karlakórnum, Helga Rós Indriðadóttir, kórstjórnandi og sópran, Óskar Pétursson tenór og hljómsveitin Salon Islandus. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti hátíðarræðu og Logi Vígþórsson var dansstjóri. Meira…
Fyrir hláku
Þar sem veðurminni Íslendinga virðist oft stopult er ágætt að rifja upp, núna þegar hlákan er sem mest, hvernig útlitið var fyrr í vikunni. Eins og einhvern gæti rekið minni til gerði stórhríð á landinu öllu. Sveinn Brynjar Pálmason á Sauðárkróki fór með myndavélina um bæinn og smellti af. Meira…
Síðasti sveinninn á leiðinni heim
Þrettándinn var samkvæmt almanaki í gær en þjóðsögur herma að síðasti jólasveinninn drífi sig heim á þrettánda degi jóla. Margur notar daginn til að slútta jólunum með veisluhöldum og flugeldauppskotum og Feykir veit til þess að í Akrahreppi var þrettándabrenna í gærkvöldi. Meira…
Gamla kirkjan á Blönduósi fær nýtt hlutverk
Menningarviðburður var haldinn í gömlu kirkjunni á Blönduósi sl. fimmtudagskvöld. Kirkjan var fullsetin og skapaðist þar afar sérstakt og notalegt andrúmsloft eins og fylgir gjarnan gömlum kirkjum. Meira…
Karlakórinn Heimir söng í Skagfirðingabúð
Karlakórinn Heimir tók lagið fyrir búðargesti Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki í gær. Börn sem stödd voru í versluninni fengu að syngja nokkur jólalög með kórnum og skapaðist þar afar skemmtileg jólastemning. Meira…
Aðventan boðin velkomin á Hnappstaðatúni í gær
Fjöldi skagstrendinga komu saman á Hnappstaðatúni í veðurblíðunni í gær og fögnuðu því að aðventan sé gengin í garð. Meira…
Ljósin tendruð í blíðskaparveðri – Uppfært
Hann var fallegur dagurinn í dag þegar kveikt var á jólatrénu á Kirkjutorgi á Sauðárkróki. Aðventustemning var í Aðalgötunni og víðar á Króknum frá kl. 14 í dag og hvarvetna var hægt að nálgast heitt súkkulaði og annað meiriháttar fínerí. Maddömur buðu upp á forláta kjötsúpu, Contalgen Funeral spilaði í Móðins þar sem Búbbi seldi áður yfir borð, Kammerkór Skagafjarðar söng í Minjahúsinu og svo mætti lengi telja. Meira…
Friðarganga upp á Nafir
Árleg friðarganga Árskóla fór fram í morgun en krakkarnir lögðu af stað frá skólanum kl. 08:15. Meira…
Gleði og gaman á Króksamóti
Króksamótið í minnibolta sem Körfuknattleiksdeild Tindastóls stendur fyrir fór fram í dag í Íþróttahúsi Sauðárkróks. Mótið hófst kl. 11 í morgun og voru eldhressir þátttakendur um 140 talsins og komu af Norðurlandi. Meira…
Fullt útúr dyrum á Menningarkvöldi Nemós
Menningarkvöld Nemós, nemendafélags FNV, fór fram í sal Fjölbrautarskólans sl. föstudagskvöld. Þar voru nemendur skólans búnir að setja saman metnaðarfulla dagskrá sem stóð frá kl. 20-22:30. Menningarkvöld hefur verið árlegur viðburður í FNV og er opinn fyrir almenning. Fullt var útúr dyrum og mikil stemning í húsinu. Meira…
Gleði á frumsýningu Allt í plati
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi leikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson sl. miðvikudagskvöld við góðar undirtektir leikhúsgesta. Á meðal áhorfenda mátti sjá börn allt niður í eins og hálfs árs sem horfðu á leiksýninguna með mikilli hrifningu. Meira…
Það eru allir stjörnur á dansgólfinu
Það er engin launung að Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla hófst í morgun og ætla ungmennin að dansa sleitulaust í 26 klukkutíma, stíga síðustu sporin um hádegi á morgun og þá verða vonandi komnar nokkuð margar krónur í ferðasjóðinn. Nú geta gestir kíkt í íþróttahúsið, fylgst með dansinum og stutt við bakið á dönsurunum með því að eiga viðskipti við kaffihúsið sem opið er til kl. 22:00 í kvöld. Eftir það færa 10. bekkingar sig yfir í Árskóla. Meira…
Fjöldi manns á Skagfirskum bændadögum
Fjöldi fólks lagði leið sína á Skagfirska bændadaga í Skagfirðingabúð á fimmtudag og föstudag. Þar gátu gestir gert góð kaup á ýmsum skagfirskum matvælum og gætt sér á margskonar gómsætum réttum sem bændur buðu upp á.
Meistarakokkurinn Árni Þór Arnórsson reiddi fram girnilega rétti og Ásmundur Einar Daðason alþingismaður og sauðfjárbóndi var á meðal þeirra sem kynntu framleiðslu bænda í Skagfirðingabúð. Mikil ánægja var á meðal búðargesta, eins og sjá má á þessum myndum sem teknar voru síðdegis í gær. Meira…
Helgi Pís fær (stundum góðar) hugmyndir
Helgi Fannar Antonsson, oft kallaður Helgi Pís, er friðarins maður. Í kjölfarið á umræðu um að lögreglan fengi skammbyssur og stuðbyssur sér til varnar þá hafði Helgi samband við Dreifarann og kvaðst hafa áhyggjur af ofbeldinu í þjóðfélaginu en þóttist … lesa meira
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS... USS.. lítur dagsins ljós.
- Til þeirra er málið varðar
- Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS… USS.. lítur dagsins ljós.
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Vorsýning nemenda Blönduskóla
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
- Skíðamenn slútta
- Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
- Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
- Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Það er ekki einu sinni ljós í myrkrinu
Herra Hundfúll er máttfarinn og miður sín í miðju maíhreti. Ekki nóg með að veðrið sé eins og það er heldur þurfti hann nánast að draga vatnsdropana út um sturtuhausinn í morgun. Þá fyllist hann depurð við að sjá ljósastaurana á Króknum teygja sig ljóslausa til himins. Það er eins og þeir séu risastórar vegastikur nema það hefur gleymst að setja á þá endurskinsmerkin. Sem er reyndar hugmynd…
Frú frábær hefur miklar mætur á Sæluviku
Nú er Frú Frábær í sínu stóra ESSI, enda Sæluvikustemningin yfir og allt um kring. Menning og læti, eins og hún orðar það. –Ég ætla sko að drekka í mig allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða þessa frábæru viku. Alveg FRÁBÆRT!















