Jóhanna og Steingrímur – Svariði!
Byggðarráð Skagafjarðar fjallaði í dag á fundi sínum um bréfaskriftir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til forætisráðherra en eins og áður hefur komið fram á Feyki.is hefur bréfi frá 21. nóvember 2011 ekki verið svarað á fullnægjandi hátt að mati SSNV. Þar er óskað eftir samstarfi um sértækar aðgerðir í landshlutanum. Meira…
Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fagna því að velferðarráðherra hefur ákveðið að tryggja rekstur endurhæfingar við stofnunina, svo ekki þarf að koma til lokunar eins og í stefndi. Samtökin vilja minna á að þetta er aðeins einn áfangi í þeirri baráttu sem staðið hefur nú um nokkurt skeið og lýtur að því að tryggja rekstrar- og þjónustugrundvöll Heilbrigðisstofnunarinnar. Meira…
Engar bollur á mánudaginn
Matreiðslukappinn Ólafur Jónsson eða Óli á Hellulandi hefur orð á sér fyrir að vera sérlega duglegur og ósérhlífinn og stundum á undan sinni ‚framtíð‘ eins og kallinn sagði. Það sannaðist í dag þegar hann auglýsti í Sjónhorninu matseðil næstu viku hjá ‚Gott í gogginn‘. Meira…
Lífsins blómasystur komin út
Bókin Lífsins blómasystur er komin út og fjallar hún um hannyrðakonur af Svaðastaðaætt í Skagafirði. Höfundur er Sigrún Ingibjörg Arnardóttir, eða Inga Arnar eins og hún er jafnan kölluð, þjóðfræðingur og fata- og textílkennari. Meira…
Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum
Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður efnir til almenns stjórnmálafundar í Ljósheimum Skagafirði, í dag fimmtudaginn 9. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 20. Jafnframt efnir Ásbjörn Óttarsson alþingismaður til fundar í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi á sama tíma. Fundirnir eru opnir öllum. Meira…
Þórarinn Eymundsson í viðtali við Hestafréttir
Hestafréttir birti nýlega viðtal við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla. Viðtalið er hluti af í röð slíkra sem ganga fyrst og fremst út á að kalla eftir skoðunum kynbótaknapa á breytingunum á yfirlitssýningu Landsmóts. Meira…
Strokupiltar fundnir
Drengirnir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði í dag og björgunarsveitir leituðu í kvöld eru fundnir. Drengirnir fundust í veiðihúsinu við Skeggstaði þar sem þeir höfðu brotist inn. Meira…
Bolir á stuðningsmenn Tindastóls
Nú fer stemningin að stigmagnast fyrir úrslitaleikinn í Powerade- bikarnum sem fram fer þann 18.febrúar í Laugardalshöllinni milli Tindastóls og Keflavíkur. Margar hugmyndir eru komnar á loft um umgjörð og athafnir áhorfenda til að skapa sem mestu og bestu stemningu. Meira…
Opinn fundur velferðarráðherra á Hótel Mælifelli á fimmtudag
Krafan er að fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar
Bjarni Jónsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sakaði ríkisstjórnina um að sýna íbúum landshlutans fálæti í fréttum Útvarpsins fyrr í vikunni en ríkisstjórnin hefur ekki svarað erindi samtakanna með fullnægjandi hætti um mögulegar aðgerðir til að bregðast við fólksfækkun. Meira…
Þorrablót Skagfirðingafélagsins á föstudagskvöldið
Hið margrómaða þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavik verður haldið föstudagskvöldið 10 febrúar n.k. í Húnabúð. Dýrindis þorramatur verður í boði ásamt skagfirskum skemmtiatriðum sem og veislustjórum. Meira…
Leikur Tindastóls gegn Grindavík fer fram annað kvöld
Leikur Tindastóls og Grindavíkur í Express-deildinni í körfubolta sem fram átti að fara á föstudag hefur verið flýtt til fimmtudags 9. febrúar. Er þetta gert vegna jarðafarar í Grindavík á föstudag. Meira…
Ekki sátt um styttingu opnunartíma sundlauga
Nýverið var íbúum Skagafjarðar tilkynnt um breyttan opnunartíma á sundstöðum í héraðinu. Ekki eru allir sáttir við þá ráðagerð og heyrst hefur að viðskiptavinir sundlaugarinnar í Varmahlíð séu einkar ósáttir. Flestir fara í sund eftir kvöldmat segir ósáttur íbúi á svæðinu. Meira…
Varað við stormi í kvöld
Veðurstofa Íslands varar við stormi um allt land og mun veðurhamurinn skella á Norðvesturland í kvöld. Í dag verður austan og síðar suðaustan 8-15 en gengur í suðvestan 18-23 í kvöld. Rigning með köflum. Meira…
Fjórir Íslandmeistaratitlar á MÍ 15-22 ára
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fyrir 15-22 ára fór fram um sl. helgi í Laugardalshöll í Reykjavík. Um 240 keppendur voru skráðir til leiks sem var nokkuð meira en á sl. ári, samkvæmt heimasíðu Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Keppendur komu frá 17 félögum og samböndum og kepptu í samtals 784 greinum. Meira…
Tindastóll í höllina. Feykir-TV
Þann 5. febrúar áttust við lið Tindastóls og KR í undanúrslitum Powerade bikarsins í Síkinu. Eins og ÓAB sagði í lýsingu sinni á leiknum hér á Feyki voru Stólarnir oftar en ekki skrefinu á undan Vesturbæingum í hreint geggjuðum körfuboltaleik sem var spilaður á fullu tempói frá fyrstu til síðustu mínútu, leikmenn voru á stóru tánum og áhorfendur stóðu á öndinni. Tindastóll var 3 stigum yfir í leikhléi, 45-42, og þegar upp var staðið munaði enn þremur stigum, lokatölur 89-86. Lið Tindastóls komst með sigrinum í úrslitaleikinn þar sem það mætir reynsluboltunum úr Keflavík. Meira…
Fríður barnahópur söng fyrir búðargesti
Nemendur á eldra stigi leikskólans Ársala tóku lagið í Skagfirðingabúð í tilefni degi leikskólans. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land þann 6. febrúar en sama dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Meira…
Á fæðingardeildina eftir leik
Eftir mikinn spennuleik Tindastóls og KR í bikarnum í gærkvöldi á Sauðárkróki, renndi Helgi Rafn Viggósson leikmaður Tindastóls til Akureyrar með sambýliskonu sína þar sem hún ól honum dreng um klukkan 4 í nótt. Meira…
Breyttur opnunartími sundlauga í Skagafirði
Opnunartími sundlauganna í Skagafirði hefur tekið breytingum frá og með gærdeginum en við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 var tekin sú pólitíska ákvörðun að hagræða í rekstri sundlauga með því að stytta opnunartíma yfir vetrarmánuðina, lækka launakostnað, hækka tekjur og reyna að koma á meira samstarfi milli íþróttamannvirkja. Ekki skyldi þó koma til uppsagna en nýta það svigrúm sem skapaðist ef starfsfólk hætti eða færi í leyfi. Meira…
Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur
Dagur leikskólans er haldin hátíðlegur um allt land í dag og eru leikskólar hér á Norðurlandi vestra þar ekki undanskildir. Meira…
Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
Erlendur Guðjónsson hefur lengi glímt við baðvigtina en konu hans, Sigríði Guðfinnu Hjálmarsdóttur, finnst Lendi ekki vera brúklegur til meiri- eða minniháttar ævintýra eins og að ganga með sér Laugaveginn svo dæmi sé tekið. Nú er svo komið að Lendi … lesa meira
- Jóhanna og Steingrímur – Svariði!
- Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
- Engar bollur á mánudaginn
- 112 dagurinn í Húnaþingi –vestra
- Lífsins blómasystur komin út
- Alexandra í Súkkulaðilandi
- Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Bolir á stuðningsmenn Tindastóls
- Leikur Tindastóls gegn Grindavík fer fram annað kvöld
- Fjórir Íslandmeistaratitlar á MÍ 15-22 ára
- Tindastóll í höllina. Feykir-TV
- Á fæðingardeildina eftir leik
- Breyttur opnunartími sundlauga í Skagafirði
- Helga Margrét bætti Íslandsmetið á móti í Tallin
- Stóll-inn, Stóll-inn, Stóll-inn – TINDASTÓLL!
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Fáum unga fólkið í Skagafjörð
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Útrýming Vestfirðinga gengur vel og stenst áætlun stjórnvalda
- Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta
- 23 útgerðarmenn – loðnir um lófana
- Falsspámenn
- Drög að nýjum vopnalögum er fjalla um búnað til að stunda bogfimi hverskonar
Skröltandi drykkjadósir í nóttinni
Herra Hundfúll er ekki að fíla rokið. Sérstaklega ekki þegar tómar dósir stíga stríðsdans í nóttinni og lemjast utan í veggi með tilheyrandi hávaða og látum þannig að Hundfúlum kemur ekki dúr á auga. Þetta hefur þau áhrif á Hundfúlann að hann verður eiginlega alveg… hundfúll!?
Ýmislegt sem kemur í ljós í hlákunni
Frú Frábær er alveg í skýjunum eftir hlákuna sem ríkt hefur undanfarið því eftir að snjórinn fór kom snjóskóflan hennar í ljós sem sennilega hafði fennt í kaf í nóvember. Ekki nóg með það því iðnaðarsaltið sem hún tók úr kryddhillunni og saltaði bílastæðið og tröppurnar með í byrjun janúar fannst líka. –Ef þetta heldur svona áfram á ég kannski von á af finna manninn minn í einhverjum skaflinum en hann hefur ekki sést síðan þorrinn hófst. Alveg frábært ef það gerðist.













