Skíðamenn slútta
Fyrir skömmu hélt skíðadeild Tindastóls uppskeruhátíð sína eftir glæsilegt vetrarstarf en um fimmtíu börn og unglingar úr Skagafirði og Húnavatnssýslu hafa æft stíft í Tindastóli í vetur. Þjálfarar voru þeir Björgvin Björgvinsson, Gunnar Björn Rögnvaldsson, Snjólaug Jónsdóttir, Sveinn Sverrisson og Vernharð Guðnason. Meira…
Sumarblíðan lætur bíða eftir sér
Það er vetrarveður í kortunum hjá snillingunum á Veðurstofunni. Spáð er klassísku vetrarveðurshatttrikki; frosti, hvassviðri og snjókomu, í dag og á morgun, og verða íbúar á Norðvesturlandi að prísa sig sæla með að hitastigin skríði ekki mikið yfir frostmarkið fyrr en undir helgi. Meira…
Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
Óska eftir umsjónarmanni dreifnáms á Hvammstanga
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Hvammstanga. Umsóknarfrestur er til 14. júní nk. Meira…
Dreymir um að sjá fólk flykkjast til kirkju
Kjör til vígslubiskupsembættisins að Hólum fer fram um miðjan mánuðinn. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal er ein af þeim sem gefur kost á sér til embættisins en hún hefur verið á ferðalagi um landið undanfarnar vikur. Blaðamaður Feykis hitti Solveigu Láru þegar hún átti leið um Skagafjörð á dögunum og spurði hana út í ævistarfið og draumsýn hennar fyrir Þjóðkirkjuna. Meira…
Fleiri aukasýningar á Tveir tvöfaldir – allra allra seinustu sýningar
Í tilefni af góðri aðsókn á Tveir tvöfaldir þá hefur leikfélagið bætt við þremur sýningum til viðbótar við aukasýninguna næstkomandi miðvikudagskvöld 16. maí. Aukasýningar eru sem hér segir; sunnudagskvöldið 20. maí, mánudagskvöldið 21. maí og allra allra seinasta sýning fimmtudagskvöldið 24. maí. Allar aukasýningar hefjast kl. 20.30. Meira…
Margir bílar á slæmum dekkjum
Veðurstofa Íslands vekur athygli á slæmri veðurspá fyrir næstkomandi sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa. Meira…
Ný heimasíða um tjaldsvæði í Skagafirði
Ný heimasíða tjoldumiskagafirdi.is er komin í loftið en þar er hægt að finna upplýsingar um tjaldsvæðin á Sauðárkróki, Hólum, Hofsósi, Varmahlíð og einnig um nýtt hópatjaldsvæði í Hegranesi.Tjöldum í Skagafirði er rekið af Álfakletti ehf. sem er í eigu skötuhjúanna Hildar Þóru Magnúsdóttur og Halldórs Brynjars Gunnlaugssonar. Meira…
Síðasti séns að vinna ferð til Prag!
Nú er fer að vera síðasti séns að vera með í lukkupottinum og vinna ferð til Prag í haust en eftir kl. 12 á sunnudaginn, mæðradag, verður heppinn áskrifandi Feykis dreginn úr pottinum og mun hann vinna ferð fyrir tvo til einnar fallegustu borgar Evrópu, ásamt hótelgistingu á ✰✰✰✰ hóteli, í boði Heimsferða. Meira…
Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
Vandi fylgir vegsemd hverri og það fær knattspyrnudeild Tindastóls nú að sjá, þá leiktíð sem brátt hefst í 1.deild en ýmsar leyfisveitingar eru háðar því að ströngum skilyrðum sé uppfyllt. Ein af þeim er að hafa öryggisverði á heimaleikjum félagsins. Meira…
Sláttur hafinn í Skagafirði
Það urðu margir undrandi í gær er sást til bóndans á Hlíðarenda í Óslandshlíð í Skagafirði byrja heyskap óvenju snemma þetta árið þar sem hann fór um sinumikið túnið, sló í lítinn flekk og rúllaði. Þegar betur var að gáð var það ekki heyleysi sem hrjáði bóndann þetta vorið heldur var þarna á ferðinni prófun á nýrri rúllubindivél. Meira…
„Vegir liggja til allra átta“ í Iðnó á sunnudaginn
Guðrún Ásmundsdóttir og Alexandra Chernyshova verða með uppákomu sem þær nefna „Vegir liggja til allra átta“ á sunnudaginn 13. maí í Iðnó kl. 20:00. Á uppákomunni verða fluttar sögur og ljóð og sungin tónlist. Meira…
Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Pétur Rúnar Birgisson, leikmaður 10. flokks Tindastóls í körfubolta, er senn á förum til Svíþjóðar þar sem hann mun leika fyrir hönd Íslands á Norðurlandamótinu í Solna. Meira…
Fulltrúar Árskóla á hinum landsfræga faraldsfæti
Það ríkti mikil stemning í nótt hjá 10. bekkingum sem mættu í Árskóla en þar beið þeirra rúta frá Suðurleiðum sem átti að flytja þessa hressu og spræku Króksara í Leifsstöð þar sem hópurinn steig inn í fararskjóta annarar gerðar sem átti að skutla þeim til Danmerkur. Jú, unglingarnir eru farnir í skólaferðalag til Danmerkur. Meira…
Minningahöllin á YouTube
Það verður æ algengara að tónlistarfólk komi afurðum sínum á framfæri á YouTube enda auðvelt að nota þann möguleika ef gróðasjónarmið ráða ekki för. Þannig er það hjá Smára Eiríkssyni (Hansen) brottfluttum Króksara og dóttur hans Veroniku Hebu 11 ára sem sömdu lagið Minningahöllin. Meira…
Hita- og ljósleiðaralagnir hætt komnar
Hofsáin hefur verið á hreyfingu undanfarið og hefur það leitt til þessa að hita- og ljósleiðaralagnir hafa flotið upp á yfirborðið og verið í hættu. Samkvæmt heimasíðu Skagafjarðarveitna kom þetta fyrir á tveimur stöðum, þ.e. í Hofsánni og einnig í Grafaránni. Meira…
Sveitasæla hjá nemendum Varmahlíðarskóla
Nú er sauðburður hafinn en þá er hver vinnandi hönd verðmæt í sveitum landsins. Sveitadagar er framlag Varmahlíðarskóla til samfélagsins og njóta allir góðs af. Nemendur skólans eru þá fimm daga við störf í sveit, einhverjir heima hjá sér og aðrir hjá vinum, vandamönnum eða einhverjum þeim sem þeir kjósa að vera hjá, segir Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðaskóla í samtali við Feyki. Meira…
Verður sundþjálfari hjá Tindastóli
Ingunn Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sundþjálfari hjá Sunddeild Tindastóls. Ingunn er 22 ára gömul og æfði sjálf sund hjá deildinni frá árinu 2002-2007. „Eins og hún segir sjálf hefur hún áhuga á heilsu og hreyfingu og elskar að synda,“ segir á heimasíðu Tindastóls. Meira…
1. deild karla á SportTV í sumar
KSÍ og SportTV hafa komist að samkomulagi um að sýnt verði frá leikjum 1. deildar karla í sumar á SportTV á vefsvæðinu http://www.sporttv.is/. Sýndur verður a.m.k. einn leikur í hverri umferð og einnig er stefnt að því að teknar verði saman markasyrpur í hverri umferð sem einnig verða sýndar á SportTV. Útileikur Tindastóls gegn Haukum verður sýndur nk. laugardag. Meira…
Uppskeruhátíð yngri flokkanna haldin í gær
Uppskeruhátíð yngri flokka Tindastóls í körfuknattleik var haldin í gær. Á Tindastóll.is segir að samkvæmt venju voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku og góðan árangur. Þá fékk Kári Marísson þakklætisvott frá unglingaráði fyrir vel unnin störf, en Kári kveður nú þjálfaragengi körfuknattleiksdeildar eftir frábær og óeigingjörn störf í áratugi. Meira…
Helgi Pís fær (stundum góðar) hugmyndir
Helgi Fannar Antonsson, oft kallaður Helgi Pís, er friðarins maður. Í kjölfarið á umræðu um að lögreglan fengi skammbyssur og stuðbyssur sér til varnar þá hafði Helgi samband við Dreifarann og kvaðst hafa áhyggjur af ofbeldinu í þjóðfélaginu en þóttist … lesa meira
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS... USS.. lítur dagsins ljós.
- Til þeirra er málið varðar
- Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS… USS.. lítur dagsins ljós.
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Vorsýning nemenda Blönduskóla
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
- Skíðamenn slútta
- Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
- Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
- Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Það er ekki einu sinni ljós í myrkrinu
Herra Hundfúll er máttfarinn og miður sín í miðju maíhreti. Ekki nóg með að veðrið sé eins og það er heldur þurfti hann nánast að draga vatnsdropana út um sturtuhausinn í morgun. Þá fyllist hann depurð við að sjá ljósastaurana á Króknum teygja sig ljóslausa til himins. Það er eins og þeir séu risastórar vegastikur nema það hefur gleymst að setja á þá endurskinsmerkin. Sem er reyndar hugmynd…
Frú frábær hefur miklar mætur á Sæluviku
Nú er Frú Frábær í sínu stóra ESSI, enda Sæluvikustemningin yfir og allt um kring. Menning og læti, eins og hún orðar það. –Ég ætla sko að drekka í mig allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða þessa frábæru viku. Alveg FRÁBÆRT!
















