112 dagurinn í Húnaþingi –vestra
Nk. laugardag 11.2 er 112 dagurinn. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþing-vestra að bjóða öllum með í hópakstur um Hvammstanga og allir fá að fara með meðan pláss leyfir, samkvæmt tilkynningu frá Björgunarsveitinni Húnum. Lagt verður af stað í hópaksturinn frá Húnabúð kl 13:30. Meira…
Krafan er að fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar
Bjarni Jónsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sakaði ríkisstjórnina um að sýna íbúum landshlutans fálæti í fréttum Útvarpsins fyrr í vikunni en ríkisstjórnin hefur ekki svarað erindi samtakanna með fullnægjandi hætti um mögulegar aðgerðir til að bregðast við fólksfækkun. Meira…
Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra
Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra verður haldin í fundarsal Ráðhússins á Hvammstanga á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar nk. kl. 15. Verður þetta 195. fundur samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins. Meira…
Varað við stormi í kvöld
Veðurstofa Íslands varar við stormi um allt land og mun veðurhamurinn skella á Norðvesturland í kvöld. Í dag verður austan og síðar suðaustan 8-15 en gengur í suðvestan 18-23 í kvöld. Rigning með köflum. Meira…
Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur
Dagur leikskólans er haldin hátíðlegur um allt land í dag og eru leikskólar hér á Norðurlandi vestra þar ekki undanskildir. Meira…
Hættulegustu vegir landsins– stutt samantekt nýrrar rannsóknar
Fjöldi umferðarslysa á þjóðvegum landsins er mestur á helstu stofnbrautum frá Reykjavík, norður yfir heiðar til Akureyrar, og á helstu vegum á Mið-Austurlandi. Hættulegast er hins vegar fyrir einstaka vegfarendur að vera á ferðinni á þjóðvegum á norðausturhorni landsins, norðanverðu Snæfellsnesi og helstu vegum á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum. Þetta sýnir ný rannsókn sem birtist í Læknablaðinu sl. föstudag og unnin er af Þóroddi Bjarnasyni prófessor og stjórnarformanni Byggðastofnunar og Sveini Arnarssyni meistaranema í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. Meira…
Helga Margrét bætti Íslandsmetið á móti í Tallin
Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona úr Ármanni bætti Íslandsmet sitt er hún keppti í fimmtarþraut innanhúss á alþjóðlegu móti í Tallin í Eistlandi, dagana 3. og 4. febrúar sl. Fyrra met hennar var 4.205 stig frá árinu 2010, en hún bætti met sitt um 93 stig og hlaut samtals 4.298 stig í keppninni. Meira…
Húnar aðstoða við Hvítserk
Í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga þar sem erlendir ferðamenn lentu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Á heimasíðu sveitarinnar segir að farið hafi verið á Húna 2 og gekk vel hjá strákunum að koma þeim aftur upp á þjóðveg og gátu ferðamennirnir haldið áfram för sinni. Meira…
Breyting á aðalskipulagi 2002-2014 og deiliskipulagi austan Norðurbrautar á Hvammstanga
Tillaga um breytingu á aðalskipulagi 2002-2014 og deiliskipulag austan Norðurbrautar á Hvammstanga í Húnaþingi vestra var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 12. janúar sl. Meira…
Kynningarfundur um dreifnám FNV í Húnaþingi vestra
Kynningarfundur um væntanlegt dreifnám, sem kemur til með að standa íbúum Húnaþings vestra til boða, fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 18. Meira…
Skyndihjálparnámskeið á vegum Hvammstangadeildar RKÍ
Hvammstangadeild Rauða Kross Íslands býður upp á skyndihjálparnámskeið sem haldið verður í safnaðarheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 3. febrúar nk., kl. 16 -22. Meira…
Jákvæð fjárhagsáætlun hjá sameinuðum sveitarfélögum
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti fjárhagsáætlun sameinaðs sveitarfélags, Húnaþings vestra og Bæjarhrepps fyrir aðalsjóð og undirfyrirtæki árið 2012, á fundi sveitarstjórnar 26. janúar sl. en sameining sveitarfélaganna gekk í gildi þann 1. janúar sl. Um er að ræða samkeyrslu á áætlun beggja sveitarfélaganna en þær höfðu áður afgreitt fjárhagsáætlun fyrir 2012 hver um sig. Meira…
Sterna áfram með fólksflutninga
Í morgun voru undirritaðir aksturssamningar á milli Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Norðurlandi Vestra, Eyþings og Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Bíla og fólks ehf. / Sterna um áframhaldandi akstur á leiðunum Reykjavík – Snæfellsnes, Reykjavík – Borgarnes – Búðardalur, Reykjavík – Sauðárkrókur – Siglufjörður og leiðin á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Einnig liggur fyrir aksturssamningur við Vegagerðina um akstur frá Búðardal til Hólmavíkur í beinu framhaldi af akstrinum frá Reykjavík í Búðardal. Meira…
Umhleypingar framundan
Í dag verður sunnan 8-13 m/s og rigning með köflum með hita frá 1 til 7 stiga samkvæmt spá Veðurstofunnar fyrir Norðurlandi vestra. Vestlægari verður á morgun, slydda og síðar él. Hiti um eða yfir frostmarki. Vegir eru greiðfærir en víðast hálka þó síst á láglendi í Skagafirði. Flughált er á Þverárfjalli. Meira…
Fundur um vaxtasamning á Gauksmýri í dag
Síðasti fundur um nýjan vaxtasamning á Norðurlandi vestra verður haldinn í dag fyrir íbúa Húnaþings vestra á Gauksmýri og hefst kl. 12:00 á hádegi. Á fundinum verður nýr vaxtarsamningur kynntur og farið yfir umsóknargerð og matsgögn. Meira…
Ráðgjafi í málefnum fatlaðra í Húnaþingi vestra
Ráðgjafi í málefnum fatlaðra fullorðinna einstaklinga í Húnaþingi vestra er nú starfsmaður Sveitarfélagsins Húnaþings vestra, frá og með 1. janúar 2012. Þetta kom fram á fundi félagsmálaráðs Húnaþings vestra sem haldinn var miðvikudaginn 25. janúar sl. Meira…
Miðasala á þorrablót Umf. Kormáks hefst í dag
Þorrablót Umf. Kormáks verður haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga n.k. laugardag, 4. febrúar 2012. Húsið opnar kl. 20:00 og þorrablótið sjálft hefst kl. 20:30. Hljómsveitin Stjórnin, Sigga Beinteins og Grétar Örvars, ætla að sjá um danstónlistina. Meira…
Helga Margrét komin á fullt skrið
Helga Margrét Þorsteinsdóttir er nú að hefja sitt innanhússtímabil og hefur keppt í fimm greinum á tveimur mótum undanfarið. Á RIG sem haldið var í Reykjavík fyrir skömmu stökk hún 1.73m í hástökki sem var allt í lagi að mati Vésteins Hafsteinssonar þjálfara, en hún á best 1.77m. Helga bætti sig í 800m hlaupi, hljóp á 2.12,85mín sem er einkar góður árangur. Meira…
Aðstoða slasaðan vélsleðamann
Björgunarsveitin Húnar frá Hvammstanga var kölluð út í gær þegar tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann. Hafði hann ekið fram af snjóhengju í suðurhluta Vatnsnesfjalls fyrir ofan Hvammstanga. Meira…
Miklar leysingar í farvatninu
Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
Erlendur Guðjónsson hefur lengi glímt við baðvigtina en konu hans, Sigríði Guðfinnu Hjálmarsdóttur, finnst Lendi ekki vera brúklegur til meiri- eða minniháttar ævintýra eins og að ganga með sér Laugaveginn svo dæmi sé tekið. Nú er svo komið að Lendi … lesa meira
- Jóhanna og Steingrímur – Svariði!
- Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
- Engar bollur á mánudaginn
- 112 dagurinn í Húnaþingi –vestra
- Lífsins blómasystur komin út
- Alexandra í Súkkulaðilandi
- Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Bolir á stuðningsmenn Tindastóls
- Leikur Tindastóls gegn Grindavík fer fram annað kvöld
- Fjórir Íslandmeistaratitlar á MÍ 15-22 ára
- Tindastóll í höllina. Feykir-TV
- Á fæðingardeildina eftir leik
- Breyttur opnunartími sundlauga í Skagafirði
- Helga Margrét bætti Íslandsmetið á móti í Tallin
- Stóll-inn, Stóll-inn, Stóll-inn – TINDASTÓLL!
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Fáum unga fólkið í Skagafjörð
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Útrýming Vestfirðinga gengur vel og stenst áætlun stjórnvalda
- Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta
- 23 útgerðarmenn – loðnir um lófana
- Falsspámenn
- Drög að nýjum vopnalögum er fjalla um búnað til að stunda bogfimi hverskonar
Skröltandi drykkjadósir í nóttinni
Herra Hundfúll er ekki að fíla rokið. Sérstaklega ekki þegar tómar dósir stíga stríðsdans í nóttinni og lemjast utan í veggi með tilheyrandi hávaða og látum þannig að Hundfúlum kemur ekki dúr á auga. Þetta hefur þau áhrif á Hundfúlann að hann verður eiginlega alveg… hundfúll!?
Ýmislegt sem kemur í ljós í hlákunni
Frú Frábær er alveg í skýjunum eftir hlákuna sem ríkt hefur undanfarið því eftir að snjórinn fór kom snjóskóflan hennar í ljós sem sennilega hafði fennt í kaf í nóvember. Ekki nóg með það því iðnaðarsaltið sem hún tók úr kryddhillunni og saltaði bílastæðið og tröppurnar með í byrjun janúar fannst líka. –Ef þetta heldur svona áfram á ég kannski von á af finna manninn minn í einhverjum skaflinum en hann hefur ekki sést síðan þorrinn hófst. Alveg frábært ef það gerðist.














