Dreifarinn | 6.9.10 | 9:03

Frosti Gústafsson á Blönduósi, sem m.a. kom hársnyrtivélmenni á markað ásamt félaga sínum fyrir nokkrum misserum, lætur ekki deigan síga þegar kemur að uppfinningum og eflingu atvinnulífs og byggðar á Blönduósi. Nú hefur hann opnað fyrsta skúffuverið á Íslandi.
Frosti sagði í samtali við Dreifarann að hann hefði verið orðinn þreyttur á því að bíða eftir [...]
Meira »
Dreifarinn | 1.9.10 | 14:16

Fyrir algjöra slysni bjó Kristinn Sigurhansson bóndi í Húnaþingi vestra, til blómaáburð sem sannarlega má kalla ofurblómaáburð. –Ég var nú bara að sjóða landa eins og ég geri alltaf á mánudagskvöldum og þegar ég var að blanda drykkinn vildi ekki betur til en svo að ég rak mig í eina flöskuna og hún datt á [...]
Meira »
Dreifarinn | 27.8.10 | 11:46

Sveinn Eyleifsson sem nýlega gekk á fjallið Tindastól í Skagafirði segir að hann trúi því ekki að fjallið sé nærri þúsund metra hátt eins og víða má lesa. Skv. skólabókum og öllum helstu kortum, er Tindastóllinn skráður 989 metra hár, en Sveinn undrast það. –Ég er mjög reyndur fjallgöngumaður og hef gengið á mörg fjöll út um [...]
Meira »
Dreifarinn | 25.8.10 | 8:00

Nokkrir flugáhugamenn á Blönduósi og Sauðárkróki hafa stofnað flugfélag sem hefur þann tilgang að fljúga með farþega á milli Blönduóss og Sauðárkróks. Eiríkur Espilund er í forsvari hópsins, en flugfélagið mun hefja formlega starfsemi sína á næstu vikum. –Já við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir ferðum á þessari flugleið og þess vegna fórum við [...]
Meira »
Dreifarinn | 23.8.10 | 10:45

Nokkrir fræknir kappar hafa stundað það í sumar að synda í ám á Norðurlandi vestra, sér til skemmtunar og dægradvalar. Einn forsprakkinn er Finnur Eyfjörð en hann sagði í samtali við Dreifarann að þetta væri afar skemmtileg íþrótt. –Við höfum alltaf heyrt talað um sjósundið og af hverju má ekki synda í ánum líka? Við [...]
Meira »
Dreifarinn | 16.7.10 | 16:00
Dreifarinn hefur ákveðið að taka sér sumarfrí í nokkrar vikur og mætir ferskur á svæðið aftur eftir það.
Ekki hefur verið ákveðið hvað Dreifarinn hyggst gera í sumarfríi sínu. Þó er mikill áhugi á því að heimsækja draugahúsið í Hrútafirði, reðursafnið á Húsavík, síga í Látrabjarg og taka þátt í ótemjureið svo fátt eitt sé nefnt. Það [...]
Meira »
Dreifarinn | 15.7.10 | 11:43

Sigurlaug Ingibjartsdóttir varð fyrir því óláni þegar hún var við bakstur í síðustu viku, að setja óvart heilhveiti í staðinn fyrir hveiti í uppskrift af kleinum sem hún var ætlaði að steikja. Sigurlaug vildi þó lítið gera úr atvikinu þegar Dreifarinn hafði samband við hana.
-Þetta var nú bara óheppni hjá mér, heilhveitið er í samskonar [...]
Meira »