Hollvinasamtök Heibrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki

Markmið Hollvinasamtök Heibrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki er að standa vörð um þá grunnþjónustu sem stofnunin veitir og efla hana til að gera íbúum svæðisins kleift að sækja sem mesta heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Hollvinasamtökunum er ætlað að verða bakhjarl stofnunarinnar og vaka yfir velferð hennar.

Heibrigðisstofnunin á Sauðárkróki hefur í áranna rás verið vel rekin stofnun sem hefur lagt metnað sinn í að veita íbúum svæðisins góða og víðtæka þjónustu. Með ákvörðunum um niðurskurð á fjárframlögum til stofnunarinnar er verulega vegið að þeirri þjónustu sem veitt er. Komi niðurskurðurinn til framkvæmda mun hann grafa undan einni af meginstoðum búsetu á svæðinu.

Hollvinasamtökin eru öllum opin og er fólk kvatt til að skrá sig sem stofnfélagar með því að fylla út formið hér að neðan

[contact-form 2 "Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar"]