Hugmyndasamkeppni
(Smellið á myndina til að stækka)

Eyðublað
Hægt er að nálgast þátttöku eyðublaðið með því að smella hér.
Reglur
Óskað er eftir hugmyndum um starfsemi í húsnæði tengdu Kaffi Krók, í austurhluta hússins að Aðalgötu 16 á Sauðárkróki. Fyrir liggur að Kaffi Krókur mun opna í vesturhluta hússins, eftir endurbætur, í júní 2009. Rými það sem um ræðir í austurhluta hússins er nú óinnréttað og er að grunnfleti 250 m2.
Lýst er eftir fjölbreytilegum hugmyndum um starfsemi, þjónustu eða hvaðeina sem orðið gæti til þess að glæða húsið lífi og stutt við menningu, þjónustu, viðburði og annað starf á Sauðárkróki.
Hugmyndasamkeppnin er öllum opin. Hverjum og einum er frjálst að skila inn einni eða fleiri tillögu.
Allar hugmyndir eru velkomnar. Ekki eru sett nein skilyrði um að hugmyndasmiður taki þátt í framkvæmd hugmyndarinnar eða þeir mögulegu samstarfsaðilar sem kunna að verða nefndir til sögunnar í lýsingu hugmyndarinnar.
Skilafrestur hugmynda er til og með 31. maí 2009. Hugmyndum má skila í pósti til Sigurpáls Aðalsteinssonar, Fellstúni 2, 550 Sauðárkróki og gildir þá póststimpill 31. maí 2009. Einnig er velkomið að skila hugmyndum inn rafrænt á netfangið videosport@simnet.is og er þá skilafrestur til 23:59:59,
þann 31. maí 2009
Hugmyndum skal skila inn á eyðublöðum sem gerða hafa verið fyrir keppnina. Þau munu liggja frammi á Ólafshúsi. Einnig má nálgast eyðublöðin á vefsíðunni www.feykir.is
Að loknum skilafresti mun dómnefnd leggja mat á hugmyndirnar og kynna niðurstöður sínar opinberlega, þann 17. júní 2009.
Dómnefndin samanstendur af fimm manns og er undir stjórn Bjarna Reykjalíns arkitekts.
Veitt verða verðlaun fyrir þá hugmyndir sem bestar þykja að mati dómnefndar og þá hugmynd sem frumlegust þykir að mati dómnefndar.
Besta hugmyndin – kr. 100.000,-
Frumlegasta hugmyndin – kr. 50.000.-
Framkvæmdaaðili keppninnar er eigandi hússins. Framkvæmdaaðili áskilur sér rétt til að hafa samband við þá sem skila inn hugmyndum í því skyni að útfæra og ræða þær nánar eftir að úrslit hafa verið birt.
Þátttaka í hugmyndasamkeppninni felur ekki í sér neinar kvaðir fyrir þá sem skila inn hugmyndum. Jafnframt er framkvæmdaaðila frjálst að ganga til framkvæmda og útfærslu á þeim hugmyndum sem berast, fresta framkvæmd þeirra eða falla frá framkvæmd án kvaða.
Þeim sem hyggja á þátttöku í hugmyndasamkeppninni er velkomið að fá að skoða húsrými það er um ræðir og skulu þá hafa samband við Sigurpál Aðalsteinsson í síma 895 2515 varðandi tímasetningu. Sigurpáll veitir einnig nánari upplýsingar um hugmyndasamkeppnina og framkvæmd hennar ef einhverjar spurningar vakna.
Skilafrestur
Skila skal hugmyndum í pósti til Sigurpáls Aðalsteinssonar, Fellstúni 2, 550 Sauðárkróki eða rafrænt á netfangið videosport@simnet.is
Síðasti skilafrestur með pósti: Póststimpill 31. maí 2009.
Síðasti skilafrestur rafrænt: 31. maí fyrir kl. 23:59:59.














