Ársþing USAH á sunnudaginn

Ungmennasambands Austur-Húnvetninga heldur 101. ársþing sitt á Húnavöllum næstkomandi sunnudag, þann 18. mars, og hefst það klukkan 10:00. Á dagskrá þingsins verða hefðbundin þingmál eins og framlagning skýrslu stjórnar og endurskoðaðra reikninga, skipun þingnefnda og kosningar. Einnig verða Hvatningarverðlaun USAH afhent og kjöri Íþróttamanns USAH lýst.
 

Dagskrá þingsins er svohljóðandi:

1.            Þingsetning.
2.            Kosning fyrsta þingforseta sem tekur þegar til starfa.
3.            Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar og tekur hún
               þegar til starfa.
4.            Kosning annars þingforseta og fyrsta og annars
               þingritara.
5.            Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir
               reikningar.
6.            Álit kjörbréfanefndar.
7.            Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp til samþykktar.
8.            Ávörp gesta.
9.            Skipun þingnefnda, tillögur lagðar fyrir nefndir. Nefndir taka til starfa.
10.          Hvatningarverðlaun USAH afhent. Lýst kjöri Íþróttamanns USAH.
11.          Tillögur og nefndarálit tekin til afgreiðslu.
12.          Önnur mál.
13.          Kosningar  - álit kjörnefndar:
               a) Kosið í stjórn USAH – formaður, varaformaður og meðstjórnandi til tveggja ára,
               ritari til eins árs og fimm í varastjórn til eins árs.
               b) Kosinn skoðunarmaður reikninga til tveggja ára og varamaður hans.
               c) Kosið í fastanefndir.
               d) Kosið í ritnefnd Húnavöku skv. 13. gr. laga USAH.

14.          Fundargerð þingsins borinn upp til samþykktar.
15.          Þingslit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir