Kynningarfundur um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Ferðamálastofa og SSNV standa sameiginlega að tveimur kynningarfundum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Frá þessu er sagt á vef SSNV . Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 17. október, sá fyrri á Hótel Laugarbakka klukkan 10:30 – 12:00  og síðari fundurinn verður haldinn á Hótel Varmahlíð kl. 14:00 – 15:30. 

Á fundunum fara starfsmenn Ferðamálastofu meðal annars yfir: 

-           Breytingar á sjóðnum vegna breyttra laga og reglugerðar.
-           Hverskonar verkefni eru styrkhæf í sjóðinn og hver ekki.
-           Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
-           Umsóknarferlið og umsóknareyðublað sjóðsins.
-           Hvernig er sótt um sjóðinn?

Einkaaðilar, starfsmenn sveitarfélaga og sveitastjórnarfólk er sérstaklega hvatt til þess að mæta. 

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfresturinn er til 25. október og má nálgast auglýsinguna hér.

Mánudaginn 13. nóvember nk. (kl. 13-16)  verður blásið til Ferðamáladags á Norðurlandi vestra með fróðlegum erindum úr heimi ferðaþjónustunnar og fjörugum umræðum. Staðsetning og dagskrá verða tilkynnt á næstu dögum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir