Ókeypis heilsufarsmæling á Norðurlandi vestra

Í næstu viku verður íbúum Norðurlands vestra boðið upp á ókeypis heilsufarsmælingu á vegum forvarnarverkefnisins SÍBS Líf og heilsa. Það er SÍBS ásamt HjartaheillSamtökum lungnasjúklinga og Samtökum sykursjúkra sem standa að verkefninu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðin þátttaka í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.

Tímasetningar heilsufarsmælinga á svæðinu verða sem hér segir: 

Mánudagur 16. október 2017:
kl. 09–12      Hvammstangi, heilsugæslan 
kl. 14–17      Blönduós, heilsugæslan

Þriðjudagur 17. október 2017:
kl. 10–11       Hofsós, heilsugæslan
kl. 14–16       Skagaströnd, heilsugæslan

Miðvikudagur 18. október 2017:
kl. 08–15        Sauðárkrókur, heilsugæslan

Á heimasíðu SÍBS þar sem greint er frá verkefninu segir: „Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, en ekki einungis að vera laus við sjúkdóma og örorku. Fyrir einstaklinginn skiptir heilsan öllu. Langvinnir sjúkdómar valda næstum 9 af hverjum 10 dauðsföllum í okkar heimshluta, og tengjast þeir flestir lífsstíl. Forvarnir eru eina skilvirka leiðin til að stemma stigu við þessu. Að forða einum einstaklingi frá tíu ára sjúkdómsferli eða ótímabærum dauða skilar samfélaginu yfir 70 milljón króna sparnaði mælt í vergri landsframleiðslu á mann. Heilbrigði er því gríðarlegt hagsmunamál fyrir samfélagið.

Til þess að kortleggja hvar aðgerða er þörf í forvarnamálum er samhliða mælingum á blóðgildum lögð fyrir könnun um heilsufar og lífsstíl sem tekur á helstu áhrifaþáttum langvinnra, lífsstílstengdra sjúkdóma.  SÍBS Líf og heilsa má þannig nota til að meta stöðuna í hverju sveitarfélagi, stofnun eða vinnustað fyrir sig. Um leið hlýtur hver einstaklingur innsýn í hvað betur megi fara í eigin heilsu og lífsstíl.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir