Opið hús í Bílskúrsgalleríinu á Blönduósi

Á morgun, fimmtudaginn 22. júní, verður opið hús í Bílskúrsgalleríinu við Kvennaskólann á Blönduósi milli klukkan 17:00 og 19:00. Þá munu listamenn hjá Textílsetri Íslands bjóða til textílsýningar  og klukkan 19:00 verður myndin The Grant Green Story, eftir Sharony Green, sýnd. Myndin fjallar um jazzgítarleikarann Grant Green sem er best þekktur fyrir störf sín fyrir Blue Note Records, fyrsta óháða jazzplötufyrirtæki Bandaríkjanna.
 

Það eru listamennirnir Sarah Chu, Sharony Green, Cornelia Theimer Gardella, Karin Hedberg, Kerstin Lindström, Christine Matsson, Claire Felicity Miller, Bargara Ramsay og Päivi Vaarula sem standa að sýningunni.  og eru allir velkomnir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir