Perlað af Krafti á Landsmótinu

Perlað af Krafti á Landsmóti. Mynd:FE
Perlað af Krafti á Landsmóti. Mynd:FE

Einn af viðburðum Landsmótsins á Sauðárkróki síðustu helgi var Perlað af Krafti þar sem keppst var við að ná Íslandsmeti í perlun armbanda. Um 250 manns lögðu leið sína í Árskóla og perluðu af kappi.     

„Hugmyndin var að reyna við Íslandsmetið sem var sett af stuðningsmönum íslenska landsliðsins og Tólfunni í maí síðastliðnum. Þrátt fyrir mikið keppnisskap þá náðu þátttakendur á Landsmótinu ekki því meti og stendur Íslandsmetið því enn í 3983 armböndum“, segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts. Alls voru þó perluð 1386 armbönd sem er frábær árangur miðað við að fjölmargir aðrir viðburðir og keppni áttu sér stað á sama tíma. Á sama tíma og sama stað var einnig keppt í pönnukökubakstri sem margir perlarar nutu góðs af þar sem þeir gátu gætt sér á ljúffengum pönnukökum inn á milli." 

„Það er alveg hreint ómetanlegt hvað margir voru tilbúnir að koma og perla með okkur. En allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda. Samstaðan var einstök og það er það sem skiptir mestu máli, að fólk komi saman að hjálpi okkur að hjálpa öðrum“, segir Hulda enn fremur.

 

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir