Snjólaug María Íslandsmeistari

Íslandsmeistarinn Snjólaug María Jónsdóttir. Mynd: Húni.is
Íslandsmeistarinn Snjólaug María Jónsdóttir. Mynd: Húni.is

Snjólaug María Jónsdóttir, félagi í Skotfélaginu Markviss, endurheimti um síðustu helgi Íslandsmeistaratitil kvenna í Skeet á Íslandsmeistaramóti sem fram fór á skotíþróttasvæti Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn. Snjólaug er handhafi beggja Íslandsmeistaratitlanna í haglagreinum þetta árið en fyrr í sumar vann hún titilinn í Nordisk Trap þar sem hún setti jafnframt Íslandsmet. Er þetta í fyrsta sinn sem sami handhafi er að titlum í báðum greinum.  Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá Snjólaugu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir