Blönduós heilsueflandi bær

Íbúar bæjarins hafa flestir orðið varir við verkefnið okkar „Heilsudagar á Blönduósi“ sem stóðu yfir frá 8.-18. apríl. Markmiðið með þessum flottu dögum var einfalt.  Að hvetja fólk til að huga vel að heilsunni og hreyfa sig markvisst sem tókst svo sannarlega. Verkefnið var ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, leik- og grunnskóla, vinnustaði og eldri borgara og stuðla þannig að góðri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum.

Blönduós er heilsueflandi bær.  Aðstaðan sem við höfum á Blönduósi og í nágrenni bæjarins er eins og best verður á kosið til að stunda fjölbreytta hreyfingu, bæta heilsuna eða viðhalda góðri heilsu.  Við eigum frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunnar og höfum fjölbreytt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa.  Hér á staðnum er einnig gott sjúkrahús og starfsfólk  sem skiptir okkur bæjarbúa miklu máli.  Umhverfið er einstakt, ótal útivistarmöguleikar, stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir svo eitthvað sé nefnt.  

Við fundum fyrir mikilli jákvæðni bæjarbúa á þessum dögum og ferðamenn sem komu til okkar voru einnig mjög ánægðir með að vera boðið í sund og fá ferska ávexti í heita pottinn.  Einstaklingar, fyrirtæki og íþróttafélög lögðu öll sitt að mörkum og allir tilbúnir að taka þátt.   

Þetta er í annað sinn sem Heilsudagar eru haldnir á Blönduósi og hefur þátttaka ykkar og viðtökur farið fram úr björtustu vonum.  Það er von okkar að þessir dagar séu komnir til að vera og verði hér eftir árlegur viðburður og sem eigi síðan eftir að stækka og dafna.

Við viljum þó minna á að vegna veðurs frestaði Ragga nagli sínum fyrirlestri fram á næsta sunnudag (24. apríl).  Hvetjum við alla til að mæta og hlusta á fyrirlesturinn, gestum að kostnaðarlausu,  sem hefst klukkan 13:00 og er til 14:30 í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Að lokum viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komið hafa að þessum dögum, einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og stuðnings aðilum. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt.

Verum stolt af bænum og fólkinu okkar. Blönduós er heilsueflandi bær og með áframhaldandi vinnu getum við gert margt saman og gert bæinn okkar enn betri á margan hátt

Erla Jakobsdóttir Íþróttafræðingur og ÍAK einkaþjálfari
Róbert Daníel Jónsson forstöðumaður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir