Í tilefni 98. ársþings UMSS sem haldið var 10. mars síðastliðin

Arnrún Halla Arnórsdóttir, fráfarandi formaður UMSS.
Arnrún Halla Arnórsdóttir, fráfarandi formaður UMSS.

Ágætu Skagfirðingar!
Markmið ungmennasambandins er að stuðla að auknu samstarfi aðildarfélaga, vinna að öðrum sameinginlegum hagsmunamálum þeirra og vera málsvari þeirra og tengiliður við UMFÍ og ÍSÍ. Sterk staða og traust til sambandsins skiptir því miklu fyrir allt íþróttalífið í firðinum. Ungmennasamband Skagafjarðar er elsta starfandi ungmennsamband landsins. Hlutverk þess hefur legið svolítið á milli hluta undanfarin ár en síðastlið ár leyfi ég mér að fullyrða að spítt hefur verið allveruleg í.

En betur má ef duga skal og nú er lag að allir standi saman. Þetta snýst nefnilega bara einfaldlega um það. Samtal og samvinnu, þar sem ábyrgðin er allra. Rekstargrundvöllur UMSS er viðkvæmur og halda þarf vel á spöðunum til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu, aðildarfélögum og öllu samfélaginu til heilla. Vil ég þar draga fram mikilvægi þess að hafa góðan framkvæmdastjóra, sem við erum svo heppin að hafa nú. Hann er griðarlega mikilvægur sem stuðningsaðili, tengill og upplýsingagjafi fyrir öll aðildarfélög og sveitarfélögin hér í firðinum.

Vil ég í því sambandi nefna að ný heimasíða sambandsins verður opnuð á næstu dögum og hvet ég alla til að kynna sér hana og starfsemina www.umss.is. Um leið vil ég benda á að í sumar 12-15. júlí verður haldið á Sauðárkróki Landsmót UMFÍ og Landsmót 50+. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi mót eru keyrð saman með breyttu sniði. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að taka þátt í að búa til nýja tegund af skemmtun, eina allsherjar íþróttaveislu þar sem áherslan verður á gleði og samveru, auk þess sem hægt er að koma og prófa margar nýjar íþróttagreinar.

 Leggur stjórn UMSS ríka á herslu á það við aðildarfélög sín að þau kynni sér umgjörð mótsins og hvetji sína félagsmenn til að taka þátt sem og aðra í samfélaginu. Hægt er að kynna sér Landsmótið á heimasíðu þess www.landsmotid.is

 Ungmennasamband Skagafjarðar hefur ráðist í ýmis verkefni á árinu til að styrkja stoðir sambandsins og aðildarfélaga. Meðal stærri verkefnanna er undirbúningur viðkenningarinnar Fyrirmyndarhérað ÍSÍ sem stefnt er á að félagið fái á Landsmótinu í sumar. Það felur í sér nákvæma kortleggingu og skýrar skilgreiningar á  innviðum sambandsins og stjórnskipulagi, fjárhagslegum rekstri og starfsumhverfi.

Til að uppfylla þessi skilyrði - og löngu tímabært - var ráðist í að ganga frá samningi við sveitarfélagið Skagafjörð og Akrahrepp. Einnig til uppfyllingar skilyrða fyrirmyndarhéraðs - og líka löngu tímabært - var farið í að gera Siðareglur, Jafnréttisstefnu, Forvarnar-og fræðslusefnu, Félagsmálastefnu og umhverfisstefnu UMSS sem gildir fyrir öll aðildarfélög þess.

Því til viðbótar gekk stjórnin í að gera Viðbragðsáætlun UMSS vegna aga- eða ofbeldisbrota, eineltis, kynferðislegrar og kyndbundinnar áreitni. Þar er einnig sérstök viðbragðsáætlun vegna agabrota sem eru brot gegn sérmerktum siðareglum og varðar iðkendur eldri en 18 ára og þjálfara.

Allsherjar viðbragðsáætlun fyrir íþróttafélög er til vinnslu í ráðuneyti Íþróttamála og ákvað stjórn að bíða ekki eftir því heldur ríða á vaðið. Hægt verður þá að enduskoða áætlunina þegar frekari upplýsingar koma frá ráðuneyti.

Þessar reglur, stefnur og áætlun fengu umfjöllun á Ársþingi 2018 og eftir nefndaryfirferð og breytingar voru þær samþykktar samhljóma. Er það einlæg ósk stjórnar að öll aðildarfélög taki sig saman og sameinist um að marka þessa skýru stefnu í hegðunarviðmiðum fyrir alla, iðkendur, þjálfara, starfsmenn, stjórnarmenn, foreldra og stuðningsmenn. Slíkt er mikilvægt til að styrkja stöðu sambandsins og aðildarfélaga sem forsvarsaðila íþróttastarfs í Skagafirði.

Fimmtudaginn 8. mars samþykkti Byggðaráð sveitarfélagsins Skagafjarðar skilyrtan fjárstyrk til kynningar á siðareglunum, stefnunum og viðbragðsáætluninni auk útgjalda vegna frekari fræðslu til iðkenda og alls starfsfólks hvað varðar samskipti og samvinnu. Ráðist verður í þessa kynningu á næstu mánuðum til allra iðkenda, foreldra, þjálfara, starfsfólks, stjórnarfólks og stuðningamanna og mun þetta því skila sér hér út í samfélagið allt. Þetta verða ekki bara orð á blaði.

Mikilvægi sterkrar íþróttamenningar fyrir allt samfélagið er óumdeilt. Til þess að slíkt verði að veruleika og viðhaldist þurfa allir að leggja sig fram. Þetta snýst fyrst og fremst um framtíð barnanna okkar. Hver þeirra lífsgildi og lífsgæði verða. Íþróttaiðkun hefur marg sannað sig, ekki einugis tengt betri heilsu, andlegri og líkamlegri, heldur ekki síður til þroska góðra mannkosta og virðingar fyrir öllum.

Nú á Ársþinginu var gerð gangskör í að tryggja grunn þeirrar hugmyndafræði sem starfsemi íþróttafélaga verður að byggja á til að markmið hennar skili sér til iðkenda og þeir geti stundað sínar íþróttir  í öruggu umhverfi sem einblínir á styrkleika hvers og eins, elur upp metnað og meðvitund um ábyrgð hvers og eins á hegðun sinni og gjörðum.

Með orðum forseta vors og verndara ungmennafélagshreyfingarinnar, Guðna Th. Jóhannessonar, vil ég þakka fyrir mig:  

Andi UMFÍ er að einblína á að bæta sjálfan sig og samfélagið um leið

Um leið óska ég nýjum formanni UMSS, Klöru Helgadóttur, velfarnaðar í starfi.

Arnrún Halla Arnórsdóttir, fráfarandi formaður UMSS

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir