Lækkum leiguverð

Elsa Lára Arnardóttir
Elsa Lára Arnardóttir

Það er staðreynd að veruleg fjölgun hefur átt sér stað á leigumarkaði, frá árinu 2008. 20,8% heimila voru á leigumarkaði árið 2014, samanborið við 12,9% árið 2008. Auk þessa hafa kannanir, m.a. frá ASÍ sýnt fram á að margir þeirra sem búa á leigumarkaði, búa við verulega þungan húsnæðiskostnað. Algengt er að sá húsnæðiskostnaður nemi á bilinu 40 – 70% af ráðstöfunartekjum. 

237 milljarðar frá 2008

Frá árinu 2008 hefur verið farið í umfangsmiklar aðgerðir í húsnæðismálum. Nema þær aðgerðir að heildarumfangi 237 milljörðum. Má þar helst nefna framlag til Íbúðarlánasjóðs, í vaxtabætur, sérstakar vaxtabætur og leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum. En þessar aðgerðir hafa ekki skilað sér til þeirra sem búa á leigumarkaði. Því er kominn tími til að ráðast í verulegar umbætur á leigumarkaðsmálum. 

Bætum ástandið

Þessa dagana vinnur velferðarnefnd þingsins með húsnæðisfrumvörp sem ætlað er að bæta ástandið á leigumarkaðnum. Unnið er að því að fjölga íbúðum um 2300 talsins, á þessu og næstu þremur árum. Unnið að því að auka húsnæðisbætur til leigjenda, styrkja húsnæðissamvinnufélög og lagfæra núverandi húsaleigulög. Áætlað er að umrædd frumvörp verði afgreidd út úr velferðarnefnd á næstu vikum og mikilvægt er að frumvörpin komist hratt og vel í gegnum þingið. Þessi frumvörp eru tengd kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Frumvörpin ná markmiði sínu

Á dögunum birti Seðlabanki Íslands umsögn vegna húsnæðisfrumvarpanna er varða almennar íbúðir og húsnæðisbætur. Í umsögnum bankans kemur fram að áhrif frumvarpanna verði í samræmi við þau markmið sem frumvörpunum er ætlað að ná, það er að koma á móts við húsnæðiskostnað leigjenda.  Um frumvarp um húsnæðisbætur segir í umsögn Seðlabankans  … „það felur í sér að þær fjölskyldur sem njóta kostnaðarþátttöku ríkisins samkvæmt frumvarpinu munu með tímanum þurfa að ráðstafa nokkru minni hluta tekna sinna en ella til húsnæðis og þar af leiðandi hafa meira til ráðstöfunar í aðrar neysluvörur og sparnað.“ Í umsögn Seðlabankans um almennar íbúðir fyrir efnaminni leigjendur segir … „með frumvarpinu er lagt til að verulegum fjárhæðum verði varið til uppbyggingar á leiguhúsnæði sem verði ráðstafað til tekjulágra og annarra sem tilgreindir eru í frumvarpinu. Að öðru óbreyttu mun slíkt leiða til þess að leiguverð á slíkum íbúðum lækkar.

Þessi umsögn er í samræmi við það sem ráðgjafafyrirtækið Analytica benti á, í umsögn sinni þegar umrædd frumvörp voru til vinnslu innan velferðarráðuneytisins. 

Ánægjulegt er að sjá, að stutt sé í að umrædd frumvörp verði að lögum. Til hagsbóta fyrir einstaklinga og fjölskyldur í landinu.

Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir