Svar við pistli „Sjúkraflutningsmaður á rauðu ljósi á Blöndubrú“

Einar Óli Fossdal
Einar Óli Fossdal
Kæru Húnventningar nær og fjær,

Ég, sem yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heibrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi, vil hér með svara fyrirspurn sem kom á Húnahornið í síðustu viku. Fyrirspurnin var um það hvernig því væri háttað ef sjúkraflutningsmaður á vakt færi í forgangsútkall og væri staddur heima hjá sér austan Blöndu? Hvernig hann ætti að komast í forgangsútkall ef hann lendir á rauðu ljós við brúnna?

Búið er að gera ráðstafanir í samvinnu við lögreglu og yfirmann Vegagerðarinnar, hér á staðnum um það hvernig bregðast skal við þessu ástandi. Ef það verða tímabundnar lokanir á brúnni vegna framkvæmdanna láta starfsmenn Vegagerðarinnar okkur vita og verður þá sjúkrabíll staðsettur austan Blöndu á meðan það ástand varir til að koma í veg fyrir tafir við útkall. Allt er gert til að tryggja öryggi íbúa og ferðafólks á svæðinu.

Með ósk um góðan og öruggan og vonandi slysalausan akstur,

Einar Óli Fossdal 

Yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi  

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir