Tilkynning um þátttöku í forvali VG í Norðvesturkjördæmi

Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Dagný Rósa Úlfarsdóttir

Ég undirrituð, Dagný Rósa Úlfarsdóttir, hef ákveðið að bjóða mig fram í 3.-5. sæti í forvali hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Norðvesturkjördæmi vegna komandi kosninga. Mér finnst mikilvægt að fyrir VG starfi fjölbreyttur hópur með mismunandi sjónarmið og reynslu og því tek ég þátt. Ég hef setið í sveitarstjórn Skagabyggðar í 6 ár og öðlast þar góða og mikla reynslu. Ég er búsett í Austur-Húnavatnssýslu og hef starfað sem grunnskólakennari á Skagaströnd síðan 1999.

Mér eru ofarlega í huga mennta-, heilbrigðis-, landbúnaðar- og samgöngumál og tel að þar megi gera ýmislegt betur. Þessi málefni eru einmitt þau sem skipa íbúa kjördæmisins miklu máli. Hlúa þarf vel að þeim heilbrigðis- og menntastofnunum sem eru á svæðinu því þær eru hjartað í hverju samfélagi. Þær hafa mátt þola niðurskurð undanfarin ár en þeirri þróun er nauðsynlegt að snúa við. Við erum með sterk landbúnaðarhéruð og viljum halda þeim þannig áfram. Samgöngumál innan kjördæmisins skipta alla landsmenn máli og ljóst er að þar þarf að gefa verulega í þar sem ástand malarvega er víða orðið þannig að hættulegt fer að verða að fara um þá. Góðar nettengingar þykja sjálfsagður hlutur í dag og frekari uppbygging ljósleiðaranets um landið er nauðsynleg fyrir íbúa og núverandi atvinnustarfsemi sem og fyrir nýsköpun og ný atvinnutækifæri.

Ég hvet áhugafólk um breytt og bætt samfélag að taka þátt í forvali hjá VG og sýna að saman getum við haft áhrif.

Kærar kveðjur,

Dagný Rósa Úlfarsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir