Fræðslufundur með Jóni Jónssyni á Sauðárkróki

Bóknámshús FNV 25. apríl kl. 19:30-23:59
25apr

Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur fræðir ungt fólk á aldrinum 12 til 16 ára um fjármál á skemmtilegan hátt. Fundurinn verður þann 25. apríl í Fjölbrautaskóla NV, Sauðárkróki  og hefst kl. 19:30.  
Á fundinum fer Jón yfir hvernig peningar virka, mikilvægi þess að setja sér markmið og hvernig hægt er að láta peninginn endast aðeins lengur. Efnið er byggt á bókinni Ferð til fjár eftir Breka Karlsson, forstöðumann Stofnunar um fjármálalæsi.

Boðið verður upp á rútuferðir frá Kaupfélaginu á Hofsósi og Kaupfélaginu í Varmahlíð kl. 18:30. 

Allir velkomnir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.