Zoolander 2

Króksbíó 18. febrúar kl. 20:00-22:00
18feb

Króksbíó verður með forsýningu á grínmyndinni Zoolander 2 fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20:00. Með aðalhlutverkin fara Ben Stiller, Owen Wilson, Penélope Cruz, Will Ferrell, Benedict Cumberbatch,  Kristen Wiig og fleiri. Bönnuð innan 12 ára.

Það eru liðin fimmtán ár frá því að fyrirsæturnar Derek og Hansel voru upp á sitt besta í bransanum enda hefur eftirspurn eftir kröftum þeirra farið síminnkandi með hverju árinu um leið og aðrir hafa tekið við keflinu. Þetta hefur að sjálfsögðu verið dapurleg þróun en þegar alríkislögreglukonan Valentina biður þá félaga að aðstoða sig við að hafa uppi á morðingja sem hefur að undanförnu verið að kála þekktu tónlistarfólki fá þeir a.m.k. eitthvað að gera. Á sama tíma sleppur hinn öskureiði og ofsafengni Jacobim Mugatu úr fangelsi, ákveðinn í að hafa uppi á Derek sem eyðilagði líf hans í fyrri myndinni, algjörlega staðráðinn í að senda hann yfir móðuna miklu í eitt skipti fyrir öll – hvað sem það kann að kosta.

Bönnuð innan 12 ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.