Tölvuleikjamiðstöðin Kollafossi heimsótt í þriðja þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla

Í þriðja þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla heimsækjum við Jóhannes Gunnar Þorsteinsson tölvuleikja- og hljóðhönnuð og sambýliskonu hans, Arnfríði Hönnu Hreinsdóttur, á Kollafossi í Miðfirði. Í Kollafossi reka þau leikjamiðstöð, þar sem þau bjóða öðrum tölvuleikjahönnuðum í sveitasæluna, svo þeir geti einbeitt sér að vinnu sinni í friði og ró.

Þar að auki stendur parið fyrir leikjadjammi (e. game jam), þar sem hópur tölvuleikjahönnuða víðs vegar að úr heiminum koma saman til að gera tölvuleik á afmörkuðum tíma. Leikjadjömmin hafa slegið í gegn og talsvert færri komist að en vilja. Í þættinum kynnumst við Jóhannesi og Arnfríði og hvernig þau blanda saman þessum ólíkum heimum tækninnar og sveitalífsins.

Sem fyrr segir er þetta annar þátturinn af sex, þar sem fyrirtæki heimsótt og farið er yfir starfsemina, allt frá hugmynd til framleiðslu. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf.

Fyrirmyndarfrumkvöðlar er samstarfsverkefni Feykis og Skottu kvikmyndafjelags. Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttastjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson.