10 ára afmælishátíð Ness Listamiðstöðvar

Nes Listamiðstöð býður öllum að koma á Skagaströnd og fagna 10 ára afmæli listamiðstöðvarinnar um næstu helgi,  23. og 24. júní. Á hátíðinni verður sýning fjölmargra listamanna sem dvalið hafa í Nesi, bæði innsetningar og gjörningur, ásamt nýjum verkum þeirra listamanna sem dvelja nú í Nes listamiðstöð. Alls er um að ræða 80 listaverk, ljósmyndir, málverk, teikningar og margt fleira. Flest listaverkin verða einnig til sölu.

LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ
Kl. 15:00-18:00:
Nes  listamiðstöð. Opnun   sýningar á verkum listamanna sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð. Á sýningunni eru m.a. ný  listaverk eftir  Jérémy Pailler (Frakklandi) og Danielle Rante (USA) sem dvelja nú  aftur í listamiðstöðinni.

Kl. 15:30: Nes listamiðstöð. Hátíðin sett. Kaffi og afmælisterta í boði.
Kl. 16:00-18:00: Innsetning og opin vinnustofa listamanna í Bjarmanesi (kjallara). Anna  Rosa Hiort Lorenzen (Danmörku)  verður með innsetningu gerða úr hljóði, ljósum og textíl. Pam Posey (USA) býður þér að skoða teikningar og málverk.
Kl. 17:00: Gjörningur með Sophie Gee (Kanada) í Frystinum í Nes listamiðstöð.

SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ
Kl. 14:00-18:00:
Nes  listamiðstöð. Sýning á verkum listamanna sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð.
Kl. 14:00-18:00: Innsetning og opið stúdíó í Bjarmanesi (kjallara).
Kl. 16:00-17:00: Sýning níu stuttmynda eftir listamenn sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð. Sýningin er í Frystinum í Nes listamiðstöð.
Kl. 18:00-19:00: Sýning stuttmyndanna endurtekin í Frystinum í Nes listamiðstöð.

LIST UTANHÚSS
Sjáið nýja vegglistaverkið af Spákonufelli eftir Frank Webster (USA) og nýja höggmynd „Árbakkasteinn í steinboga“ eftir Nicole Shaver (USA). 
Fimmtudaginn 21. júní: Taktu þátt í sólstöðugöngu á Spákonufell og hlustaðu á hljóðlistaverkið „Hrafn. Gáttir. Helgisiður“ eftir Melody Woodnutt og Burke Jam.
Brottför frá golfskálanum kl. 22.30. Skráning á netfanginu ody.who@gmail.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir