5,8 milljónir á Norðurland vestra í verkefni tengdum aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands

Í gær fór fram kynning á þeim 100 verkefnum sem valin voru úr innsendum tillögum til dagskrár aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Kynningin var haldin í Safnahúsinu við Hverfisgötu að viðstöddum fulltrúum verkefna af öllu landinu. Alls bárust 169 tillögur og var sótt um rúmlega 280 milljónir króna og hlutu átta aðilar á Norðurlandi vestra alls 5,8 milljónir í styrki til sinna verkefna.

Verkefnin sem valin voru á dagskrána eru fjölbreytt og verða unnin um land allt. Þau bera með sér hugmyndaauðgi og gefa mynd af öflugu menningar- og atvinnulífi í landinu. Mörg verkefnanna fela í sér samstarf einstaklinga, samtaka og stofnana hér á landi og erlendis, en sérstaklega var hvatt til nýsköpunar í áherslum sem nefndin kynnti á vef sínum þegar auglýst var eftir verkefnum á afmælisdagskrána.

Verkefnin sem tengjast Norðurlandi vestra eru sem hér segir:

1,5 millj. kr. - Digital horse ehf., Árni Gunnarsson - Menning, tunga og tímagöng til 1918

1 millj. kr. - Textílsetur Íslands ses.  - Prjónagleði – 100 ára fullveldi Íslands 

900 þús. kr. - Skagfirski kammerkórinn - Í takt við tímann

800 þús. kr. - Guðmundur Ragnarsson f.h. áhugahóps um sögu Dana á Sauðárkróki í upphafi 20. aldar - Danirnir á Króknum – Um þátttöku Dana í bæjarlífi Sauðárkróks í upphafi 20. aldar 

600 þús. kr. -Háskólinn á Hólum - Áhrif skólahalds á Hólum í Hjaltadal

500 þús. kr. - Sögusetur íslenska hestsins  - Íslenski hesturinn – þjóðarhesturinn – efling og uppgangur við fullveldi 

400 þús. kr. - Akrahreppur - Hver á sér fegra föðurland

100 þús. kr. - Varmahlíðarskóli - Fullveldi – frelsi – lýðræði – hvað er nú það?

 

Viðstaddir kynninguna voru rúmlega 100 gestir, fulltrúar verkefna af öllu landinu.

 Hér fyrir neðan má sjá nánari útlistun á verkefnunum sem tengjast Norðurlandi vestra:

1,5 millj. kr. styrkvilyrði hljóta átta verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Digital horse ehf., Árni Gunnarsson

Menning, tunga og tímagöng til 1918

Verkefnið er farandsýning fyrir börn (og fullorðna) og verður í boði fyrir aldurshópinn frá 8. bekk grunnskóla til fyrstaársnema framhaldsskóla um land allt. Sýningin er sett upp sem göng þar sem áhorfandi gengur inn í rými og á leiðinni gegnum rýmið sér áhorfandinn hvernig það var að vera til árið 1918, m.a. með sýndarveruleikagleraugum. 

 

1 millj. kr. styrkvilyrði hljóta 11 verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Textílsetur Íslands ses. 

Prjónagleði – 100 ára fullveldi Íslands 

Prjónagleði samanstendur af fjórum þáttum, í fyrsta lagi samstarfi við skóla í Húnavatnssýslum þar sem velt verður upp mikilvægi fullveldis og prjónaskapar fyrir Íslendinga. Prjónasamkeppi verður þar sem markmiðið er að draga fram samlíkingu milli fortíðar og nútíðar í sögu lands og þjóðar með tilvísun í fullveldi Íslands. Samstarf verður við háskólann í Concordia í Kanada en nemendum frá þeim sem dvelja í Textílsetrinu verður boðin þátttaka í verkefninu. Lokapunkturinn verður sýning á verkefnum nemenda og annarra þátttakenda á Prjónagleði 2018.

 

900 þús. kr. styrkvilyrði hljóta þrjú verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Skagfirski kammerkórinn

Í takt við tímann

Skagfirski kammerkórinn ræðst í stórverkefni í tilefni afmælisársins en það er verkið Magnificat eftir breska tónskáldið John Rutter. Það má segja að það sýni þróunina í verkefnavali almennra kóra á 100 árum og hvað Íslendingar eru að fást við í dag, á 100 ára afmæli fullveldisins. Hinn hluti tónleikanna er helgaður íslenska einsöngslaginu en það hefur lifað með þjóðinni í 100 ár. Í þeim hluta er ætlunin að gera íslenska einsöngslaginu hærra undir höfði með nýjum hljómsveitarútsetningum. Valin verða einsöngslög ólíkra höfunda með áherslu á skagfirska arfinn. Haldnir verða þrennir tónleikar í þrem landshlutum.

  

800 þús. kr. styrkvilyrði hljóta fimm verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Guðmundur Ragnarsson f.h. áhugahóps um sögu Dana á Sauðárkróki í upphafi 20. aldar

Danirnir á Króknum – Um þátttöku Dana í bæjarlífi Sauðárkróks í upphafi 20. aldar 

Fyrirhugað er að fagna 100 ára fullveldi Íslands með því að setja upp sýningu í tali og tónum þann 1. desember 2018. Sýningunni er ætlað að gera sögu Dana á Sauðárkróki í lok 19. aldar og upphafi þeirrar 20. nokkur skil með jákvæðum og skemmtilegum hætti. Gert er ráð fyrir tveimur sýningum á Sauðárkróki. Sýningin samanstendur af lestri texta um Danina okkar og veru þeirra hér og á milli upplesinna texta og leikinna atriða verður flutt dönsk og íslensk tónlist þar sem leitast er við að fanga tíðarandann í upphafi 20. aldarinnar. Um er að ræða samstarfsverkefni þar sem koma saman nokkur félagasamtök og stofnanir í Skagafirði og standa að viðburðinum.

 

600 þús. kr. styrkvilyrði hljóta þrjú verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Háskólinn á Hólum

Áhrif skólahalds á Hólum í Hjaltadal

Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á hlutverk og áhrif skólahalds á Hólum á þróun íslensks samfélags frá fullveldi til framtíðar. Sérstaklega verður horft til áhrifa Hólamanna á umhverfi sitt með hliðsjón af sjálfstæði, byggðaþróun, menntunarstigi og tækniframförum. Haldin verður tveggja daga ráðstefnu að Hólum í Hjaltadal. Ráðstefnan verður öllum opin og munu fræðimenn og fyrrverandi nemendur skólans halda erindi um hugðarefni sín sem tengjast yfirskriftum málstofa en þær eru sjálfstæði, byggðaþróun, menntun og tækniframfarir.

 

500 þús. kr. styrkvilyrði hljóta 21 verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Sögusetur íslenska hestsins 

Íslenski hesturinn – þjóðarhesturinn – efling og uppgangur við fullveldi 

Sögusetur íslenska hestsins hyggst setja upp sýningu um íslenska hestinn og hestamennsku, stöðu hestamennsku um fullveldið og framfarasókn á fullveldistímanum. Í sýningunni kristallast hvernig frjáls og fullvalda þjóð hefur tryggt vöxt og viðgang síns þjóðarhests og komið honum á framfæri við heimsbyggðina og skapað honum þar, í samstarfi við aðrar þjóðir þar sem áhugi hefur verið til staðar, viðgang og virðingu. Sýningin verður fyrst sett upp á Landsmóti hestamanna 2018 en síða varanlega í Skagafirði

 

400 þúsund kr. styrkvilyrði hljóta átta verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Akrahreppur

Hver á sér fegra föðurland

Verkefnið er hugsað sem vekjandi og gleðileg dagskrá eina kvöldstund. Kórar munu syngja lög frá þeim hundrað árum sem þjóðin hefur verið fullvalda ríki. Milli söngatriða verður flutt lesin og leikin dagskrá um sögu þjóðar í hundrað ár. Lögð verður áhersla á mikilvægi þess að fá að lifa í frjálsu og friðsömu landi. Komið verður rækilega til skila að slíkt er ekki sjálfsagt og undirstrikað hve dýrmætt frelsið er. Verkefnið er unnið í samstarfi við Karlakórinn Heimi, Kvennakórinn Sóldís og Gangnamannafélag Austurdals.

 

100 þús. kr. styrkvilyrði hljóta þrjú verkefni, eitt á Norðurlandi vestra.

Umsækjandi: Varmahlíðarskóli

Fullveldi – frelsi – lýðræði – hvað er nú það?

Helstu markmið með verkefninu eru að: - efla vitund nemenda á hugtökunum fullveldi, frelsi og lýðræði; - nemendur átti sig á hlutverki sínu sem meðlimir í fullvalda samfélagi og þjálfist í lýðræðislegri hugsun og vinnubrögðum; - nemendur fræðist um margvíslegar gerðir stjórnarfars í heiminum; - nemendur fái innsýn í hvernig lífið var á Íslandi fyrir og eftir fullveldi. Áhersla verkefnis er tvíþætt: fullveldið Ísland og umheimurinn, nemandinn og samfélagið. Nemendur vinna ýmis verkefni, haldin verður afmælishátíð fullveldis Íslands þar sem nemendur kynna verkefni og stýra málþingi um viðfangsefnið. Samstarf er við eldri borgara og foreldra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir