Aðalfundur Flugu

Reiðhöllin Svaðastaðir. Mynd/BÞ
Reiðhöllin Svaðastaðir. Mynd/BÞ

Aðalfundur Flugu verður haldinn í anddyri Reiðhallarinnar Svaðastaða miðvikudaginn 22. júní kl. 18:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Áhugasamir um málefni Reiðhallarinnar hvattir til að mæta.

„Að loknum fundi bíður stjórn Flugu starfsfólki hallarinnar og aðstandendum keppnishalds í vetur til grillveislu í þakklætisskyni fyrir góð störf. Vonumst til að sjá sem flesta,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórn Flugu. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir