Af hverju þurfum við ný Hvalfjarðargöng?

Ég skrifaði þessa grein í Skessuhornið fyrir nokkrum mánuðum.  En held að hún eigi erindi við fleiri í kjördæminu, því útgjöld til vegamála eru takmörkuð, og því getur stórframkvæmd í vegamálum á einum stað haft áhrif á framkvæmdir annarsstaðar. Hér fyrir neðan er það sem er sagt, og það sem er rétt í þessu máli.  Ég bendi áhugasömum á að lesa evrópureglurnar.  Það er linkur á þær neðst. 

Umferðarþunginn.

Það sem er sagt:

„Umferðin er orðin svo mikil að göngin anna henni ekki.  Þau standast ekki evrópureglur, og það er oft biðröð þar.“ 

Það sem er rétt:

Núna fara 8000 bílar um göngin á hverjum degi þegar mest er.   Samkvæmt evrópustöðlum geta svokallaðir 2+1 vegir annað 20000 bílum á hverjum degi.  2+1 vegur er stundum 2 akreinar og stundum ein.  Þannig vegur er á Hellisheiði.  Fegurðin við slíkan veg er að dýrustu kaflarnir geta verið 1 akrein í hvora átt.  Þá venjulega með stálvír á milli akreina.    Slíkur vegur er miklu ódýrari en 2+2 vegur (tvær akreinar í hvora átt).  Ef gerður væri slíkur vegur á kafanum milli Akraness og Reykjavíkur, væri augljóst að göngin yrðu einbreið áfram, en aðrir kaflar á leiðinni yrðu tvíbreiðir.   En nú virðist eiga að byrja á dýrasta kaflanum og tvöfalda hann! 

Biðraðirnar í göngunum hverfa þegar gjaldskyldan fellur niður á næsta ári.

Öryggiskröfur.

Það sem er sagt:

„Öryggiskröfur Evrópusambandsins kalla á að göngin verði tvöfölduð.“

Það sem er rétt:

Reglur Evrópusambandsins kveða á um að þegar 2000 bílar fara í hvora átt (4000 á dag), þurfi flóttaleið úr göngunum vegna hættu á eldsvoða.  Flóttaleiðina má gera með manngengum göngum til hliðar við núverandi göng, eða undir veglínunni.  Breidd gangnanna gæti verið 10 sinnum minni en ný bílagöng, og þar af leiðandi allt að 10 sinnum ódýrari.  Það eru séríslenskar reglur (mögulega er Noregur með í því) að það þurfi ekki flóttaleið fyrr en þegar 8000 bíla markinu er náð.  Svo ef þessi göng væru á meginlandi Evrópu, væru þau búin að vera ólögleg í mörg ár.  Ef menn vilja flýta sér að bæta úr öryggismálunum, gera þeir þjónustugöng.  Það er miklu fljótlegra að koma þeim upp en nýjum bílagöngum.

Staðan núna:

Þetta mál virðist vera ótrúlega langt komið í kerfinu.  Vegagerðarmaður sem ég talaði við, sá ekkert nema ný bílagöng.  Kom samt ekki með nein rök gegn þjónustugöngum.  Vegamálastjóri talar um ný bílagöng.  Og þetta er í tillögum vinnuhóps um samgönguáætlun vesturlands 2017 – 2029.  Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna og stjórnarmaður í Speli, er formaður vinnuhópsins. 

Niðurlag.

Það er mikilvægt að fjármunir hins opinbera séu notaðir af skynsemi:  Fyrir heildina, en ekki fyrir sérhagsmunahópa.  Því hvet ég þá sem lesa þessa grein, að spyrja sitt þingmannsefni hvaða skoðun hann/hún hafi á þessu máli.

Kveðja, Reynir Eyvindsson, Akranesi

Reglur Evrópusambandsins má finna á þessari slóð: http://www.reynire.internet.is/blogg/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir