Arnar Skúli aðalþjálfari mfl. kvenna

Arnar Skúli Atlason nýráðinn þjálfari mfl. kvenna hjá Tindastóli og Ómar Braki Stefánsson formaður knattspyrnudeildar. Mynd: Tindastóll.
Arnar Skúli Atlason nýráðinn þjálfari mfl. kvenna hjá Tindastóli og Ómar Braki Stefánsson formaður knattspyrnudeildar. Mynd: Tindastóll.

Arnar Skúli Atlason hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari m.fl. kvenna hjá Tindastóli. Arnar Skúli var í sumar einn af þjálfurum m.fl. kvenna en tekur nú við keflinu sem aðalþjálfari.

Á Stuðningsmannasíðu knattspyrnudeildar Tindastóls segir að þarna sé á ferð ungur og metnaðarfullur þjálfari sem stjórn knattspyrnudeildarinnar hafi mikla trú á. Samhliða ráðningu Arnars Skúla var gengið frá ráðningu Christopher Harrington sem aðstoðarþjálfara. M.fl. kvenna mun næsta sumar leika í 1. deild í nýrri deildarkeppni en næsta sumar verða þrjár deildir. Arnar Skúli er með KSÍ b þjálfaragráðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir