Áskorendamótið á Dæli
feykir.is
Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
24.08.2016
kl. 13.23
Áskorendamótið á Dæli í Víðidal verður haldið föstudaginn 26. ágúst næstkomandi. Mótið hefst klukkan 18:00. Samkvæmt fréttatilkynningu verður mótið með sama hætti og í fyrra, keppt verður í fimmgangi, fjórgangi, tölti og tölti T2.
Einungis verða riðin úrslit. „Eftir mót verður grill og biðjum við fólk um að panta. Grillhlaðborðið kostar 3500 kr. á mann,“ segir á Facebook-síðu mótsins. Að neðan má sjá kynningarmyndband sem gert hefur verið í tilefni mótsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.