Ástin er diskó, lífið er pönk frumsýnt í kvöld

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra frumsýnir söngleikinn Ástin er diskó, lífið er pönk eftir Hallgrím Helgason í Bifröst á Sauðárkróki í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. nóvember. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson.

Það verða sex sýningar, frumsýningin í dag, miðvikudag, svo verða sýningar á eftirfarandi:

  • 2. sýning fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:00
  • 3. sýning laugardaginn 21. nóvember kl. 20:00
  • 4. sýning laugardaginn 21. nóvember kl. 22:00
  • 5. sýning þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20:00
  • 6. sýning miðvikudaginn 25. nóvember kl. 20:00

Hægt er að panta miða í síma 455-8070 alla sýningardaga á milli klukkan 16:00 og 18:00, einnig 17. nóvember milli kl. 16-18. Miðaverð er 1000 kr. fyrir meðlimi NFNV og yngri en 16 ára og 2000 kr. fyrir aðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir