Beint flug Enter Air á Akureyri

Það var mikið um dýrðir þegar Boeing vél flugfélagsins Enter Air lenti á Akureyrarflugvelli sl. föstudag. Mynd: MN.
Það var mikið um dýrðir þegar Boeing vél flugfélagsins Enter Air lenti á Akureyrarflugvelli sl. föstudag. Mynd: MN.

Síðastliðin föstudag lenti Boeing vél flugfélagsins Enter Air á Akureyrarflugvelli, með fyrstu bresku ferðamennina innanborðs sem koma með beinu flugi frá Bretlandi á vegum ferðaskrifstofunnar Super Break. Markar þetta tímamót í ferðaþjónustu á Norðurlandi því Super Break áformar að fljúga til Akureyrar áfram næstu misserin og að miklu leyti á þeim tíma ársins sem hingað til hefur verið rólegri í ferðaþjónustu.

Markaðsstofa Norðurlands og Isavia buðu til fagnaðar á Akureyrarflugvelli af þessu tilefni, en á meðal ræðumanna var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra. Í ræðu sinni sagði hún að þessar flugferðir yrðu mikil lyftistöng fyrir fyrirtæki á svæðinu og að samfélagið í heild nyti góðs af þeim. „Uppskeran sem við verðum hér vitni að er alls ekki sjálfgefin. Hún sprettur af mikilli framsýni aðila hérna fyrir norðan, sem hafa haft skýra sýn og óbilandi trú á möguleikum á beinu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll á hvaða árstíma sem er,“ sagði Þórdís Kolbrún.

„Bara byrjunin“

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, var að vonum mjög ánægð með daginn. „Við erum búin að vinna að þessu verkefni frá stofnun Flugklasans Air 66N árið 2011 og höfum verið að kynna Norðurland markvisst fyrir breskum ferðaskrifstofum og flugfélögum. Þetta flug er bara byrjunin og við eigum eftir að sjá aukningu í beinu flugi til Akureyrar á næstunni. Þessi árangur hefur náðst vegna þess að ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög á öllu Norðurlandi hafa staðið saman í þessu verkefni og haft óbilandi trú á því að Norðurland sé eftirsóknarverður og spennandi áfangastaður.“

Í gær lenti Boeing flugvél Enter Air, í vandræðum fyrir lendingu og snéri frá vegna veðurs. Gerðar voru þrjár tilraunir til lendingar á Akureyrarflugvelli án árangurs og var vélinni loks flogið til Keflavíkur. Virðist sem eitthvað skorti upp á aðflugsbúnað þegar vélum er lent úr norðri.

Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir á Ruv.is, að líklegt sé að flugfélög hætti við að fljúga um Akureyrarflugvöll ef aðstaðan verði ekki bætt. Ferðamálaráðherra hyggst beita sér fyrir því að aðflugsbúnaður verði settur upp á vellinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir