Berglind ráðin til Byggðasafnsins

Berglind Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga frá 1. júlí 2018 en tveir sóttu um starfið. Frá þessu er greint á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjörður í dag. 

Berglind Þorsteinsdóttir hefur lokið BA prófi í fornleifafræði frá sagnfræði- og heimspekideild Háskóla  Íslands sem og meistaraprófi í menningarfræðum frá sama skóla. Einnig hefur hún lokið ýmsum námskeiðum s.s. í grafískri miðlun. Berglind hefur víðtæka reynslu af störfum við fornleifagröft jafnt hérlendis og erlendis og hefur starfað sem verkefnastjóri við öflun heimilda og skráningu safnmuna m.a. hjá Listasafni Skagfirðinga og Byggðasafni Skagfirðinga. Einnig hefur Berglind starfað sem ritstjóri og blaðamaður en hún var ritstjóri Feykis árin 2014-2016.

Feykir óskar Berglindi til hamingju með starfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir