Björn Líndal lætur af störfum sem framkvæmdastjóri SSNV

Björn Líndal Traustason. Mynd: ssnv.is
Björn Líndal Traustason. Mynd: ssnv.is
Björn Líndal Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, hefur sagt upp störfum hjá samtökunum. Björn tók við starfi sem framkvæmdastjóri SSNV í október 2015 og var þá valinn úr hópi 16 umsækjenda.
 
Uppsögn Björns var rædd á fundi stjórnar SSNV á miðvikudaginn og var formanni stjórnar falið að ganga frá starfslokum Björns og leita til STRÁ starfsráðninga ehf. vegna ráðningar nýs framkvæmdastjóra. Björn hefur óskað eftir að láta af störfum þann 30. júní.

SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. Verkefni SSNV eru fjölbreytt og snúa að hagsmunum svæðisins, atvinnuþróun og rekstri sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna sem að því standa.​

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir