Blönduhlaup gekk vel í góðu veðri

Frá Blönduhlaupi. Mynd: Facebooksíða USAH.
Frá Blönduhlaupi. Mynd: Facebooksíða USAH.

Blönduhlaup USAH var hlaupið síðasta laugardag í ljómandi veðri og gekk vel fyrir sig. Einungis 27 hlauparar skráðu sig til leiks sem er talsvert minni þátttaka en verið hefur undanfarin ár, þar af voru aðeins sex heimamenn, og vonast skipuleggjendur hlaupsins til að sjá breytingu á því í næsta Blönduhlaupi.

Hlaupið var litaskipt að þessu sinni, þeir sem hlupu með gul númer fóru 2,5 km, bleik númer hlupu 5 km og blá númer hlupu 10 km. Engin þátttaka var í 2,5 km hlaupi, 16 ára og eldri, hvorki í kvenna- né karlaflokki.

Verðlaunaafhendingin fór fram á sviðinu við félagsheimilið og fékk 1. sætið í hverjum flokki verðlaunapening. Þar á eftir voru dregin út átta glæsileg útdráttarverðlaun sem SAH afurðir, Vilko og Lagður (Hólabaki) gáfu.

Sigurvegarar í hverjum flokki voru:

2,5 km 
15 ára og yngri, KVK: Elma Finnlaug Þorsteinsdóttir - 14:41
15 ára og yngri, KK: Sigurður Sveinn Guðjónsson - 11:51

5 km
15 ára og yngri KK: Elyass Kristinn - 25:22

16 – 34 ára KVK: Inga Birna Friðjónsdóttir - 25:38
16 – 34 ára KK: Fannar Þór Heiðuson - 18:04

35 ára og eldri KVK: Auður Aðalsteinsdóttir - 25:50
35 ára og eldri KK: Auðunn Steinn Sigurðsson - 29:55

10 km 
34 ára og yngri KVK: Ingibjörg Signý Aadnegard - 65:14
34 ára og yngri KK: Guðmundur Smári Guðmundsson - 49:07

35 ára og eldri KVK: Edda Guðsteinsdóttir - 57:44
35 ára og eldri KK: Ómar Árnason - 49:29

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir