Bolla, bolla.......

Sænskar bolludagsbollur. Mynd: Eldhússystur.
Sænskar bolludagsbollur. Mynd: Eldhússystur.

Þá er bolludagurinn á morgun og eflaust margir sem taka forskot á sæluna og fá sér bollu í dag, jafnvel kannski í gær og fyrradag líka! Margir eiga eflaust sínar föstu bolludagsuppskriftir og ganga því einbeittir til verks en alltaf eru einhverjir sem eru að gera hlutina í fyrsta sinn, nú eða jafnvel brydda upp á nýjungum. Hér er leitað í uppskriftasafn Eldhússystra, eins og stundum áður, og hér fylgir girnileg uppskrift af sænskum rjómabollum með marsipanfyllingu. Eldhússystirin Kristín Rannveig Snorradóttir hefur orðið: "
Ég var búin að búa í Svíþjóð í meira en tvö ár þegar ég smakkaði fyrst Semlu – sænska rjómabollu. Svíarnir eru dálítið grand á því í bolluáti og semlur eru seldar alveg frá því í byrjun janúar og fram á vor. Þegar ég loksins hafði það af að smakka dýrðina þá varð ekki aftur snúið – þvílíkt nammi. Í sænskum bollum er nefnilega marsípankrem í staðin fyrir sultu og mér finnst marsípan alveg sérstaklega gott! Þar að auki finnst mér bollurnar sjálfar einstaklega góðar, mikið léttari en þessar venjulegu íslensku gerbollur. Ég ákvað þess vegna í dag að prófa að gera alvöru sænskar semlur og nota þær líka fyrir íslensku bollurnar – mér finnst nefnilega báðar fyllingarnar betri. Sænska bolluuppskriftin var samt svo góð að ég held ég þurfi ekki að gera þá íslensku aftur – mér finnst hún mikið betri." <

Sænskar bolludagsbollur
Bollur
50 gr ferskt ger (eða 5 tsk þurrger)
150 gr smjör
5 dl mjólk
1,5 dl sykur
1/2 tsk salt
1 tsk vanillusykur
2 tsk steyttar kardimommur (ég notaði ca. hálfa tsk kardimommukrydd og það kom ljómandi vel út)
ca. 14 dl hveiti
Egg, slegið sundur til að pensla með

Fylling
400 gr marsípan
1 dl mjólk eða vatn
5 – 6 dl af rjóma (magn miðast við óþeyttan)

Til skreytingar
Flórsykur

Smjör brætt í potti, mjólkinni hellt út í og hitað að ca. 37 gr. Hellt í skál, ger mulið út í (eða þurrgeri bætt við) og leyst upp í volgum vökvanum. Sykri, salti, kardimommu og vanillusykri bætt við og hrært aðeins.
Hveiti bætt við vökvann í nokkrum skömmtum meðan verið er að hnoða (ég notaði að sjálfsögðu Kitchen aidið) og hnoðað þar til deigið verður mjúkt og þægilegt að vinna með – deigið er hnoðað í ca. 5 – 10 mínútur.  Deigið látið hefast þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
Deiginu er skipt í 2 hluta. Hvorum deighelming er rúllað upp í lengju og skorinn í 6 jafn stóra bita. Hver biti mótaður í bollu sem eru svo lagðar á bökunarplötu (með bökunarpappír). Bollurnar látnar hefa sig í ca. hálftíma á plötunni.
Ofninn hitaður í 200 gr. c. Bollurnar penslaðar  með egginu og bakaðar í miðjum ofni í 12 mínútur. Bollurnar látnar kólnar og svo skornar í tvennt.
Fyllingin er útbúin með því að rífa niður marsípanið með rifjárni og blanda saman við mjólk eða vatn (ég mæli með mjólk). Fyllingunni er smurt á bollurnar, þeyttur rjómi settur ofan á hverja bollu og svo lokað. Stráið flórsykri yfir til skreytingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir