Hvaða súkkulaði finnst þér best? Dökkt, ljóst eða hvítt...

Fáðu þér uppáhalds súkkulaðið þitt í dag því það er alþjóðlegi súkkulaðidagurinn í dag.

 

Áhugafólk um súkkulaði hefur oftar en ekki vanið sig á það að borða súkkulaði með einhverju öðru. Því ákvað ég að fara á stúfana og fann topp sjö lista yfir hvað er best að borða með súkkulaðinu. Þá spyr ég ykkur.... hvað af þessu finnst ykkur best með súkkulaðinu ykkar?

 

Nr. 7 - Saltað "snakk" eins og beikon, kartöfluflögur og saltkringlur. Þetta er allt talið vera ótrúlega gott súkkulaðihúðað. Hef reyndar ekki smakkað súkkulaðihúðað beikon en þetta virkar mjög girnilegt. 

 

 

Nr. 6 - Ostur og súkkulaði saman getur verið bragðmikil, smjörkennd eða kremkennd upplifun saman. Þetta er hugsanlega ekki það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú hugsar um súkkulaði en það er um að gera að prófa sig áfram í þessu því þetta myndi ekki ná á topp lista ef þetta væri ekki gott. 

 

 

 

Nr. 5 - Hnetusmjör og súkkulaði saman er einstaklega gott og getur áferðin ein og sér verið eitthvað sem bætir þetta kombó mikið.  

 

 

nr. 4 - Sæt fylling í súkkulaði er eitthvað sem er sjúklega gott eins og t.d karamella eða hunang.

 

 

Nr. 3  - Ávextir klikka aldrei þegar þeir eru súkkulaðihúðaðir og virka miklu girnilegri þannig. Mmmmmmm nammi namm 

 

 

Nr. 2 - Rauðvín, en ekki hvað. Allt gott rauðvín verður himneskt með einum súkkulaðimola.

 

Nr 1. Viti menn... datt nokkrum manni/konu það í huga að kaffi yrði í fyrsta sæti...  en það er fátt sem getur toppað erfiðan og annasaman dag en gott kaffi og guðdómlega góður súkkulaðimoli. Bætir og kætir alla þá sem finnst súkkulaði gott er það ekki?

 

 

Munið svo bara að njóta 

góða helgi 

Sigga sigga sigga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir