Innihurðir fá nýtt útlit!

Fyrir nokkrum vikum síðan setti ég inn fyrir og eftir myndir af forstofuskápi(sjá myndir hér) sem hún Sylvía Dögg Gunnarsdóttir, íbúi á Sauðárkróki, tók í gegn og gaf nýtt útlit sem tókst auðvitað með eindæmum vel hjá henni enda vandvirk. Nú langar mig að sýna ykkur innihurðir sem hún málaði á sama hátt og skápinn. Hún byrjaði á því að grunna með JOTUN Kvist-og sperregrunning, lakkaði svo yfir með LADY Supreme Finish, halvblank, Tre og panel. Hún notaði lakkrúllu í verkið. Eins og sést á fyrir og eftir myndunum þá er rosalega mikil breyting og er þetta frábær lausn ef fólk vill hafa bjartara heima hjá sér, tala nú ekki um þegar íbúðin er með dökkar hurðir í þröngum gluggalausum gangi. Liturinn sem hún notaði á veggina kallast dökkroði og fæst í Versluninni Eyrin á Króknum.

Góða helgi fallega fólk

SiggaSiggaSigga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir