Einar Sveinbjörnsson með námskeið um Veðurfræði og útivist

Úr gönguferð Ferðafélags Skagafjarðar í Trölla í sumar. Mynd: KSE
Úr gönguferð Ferðafélags Skagafjarðar í Trölla í sumar. Mynd: KSE

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, verður með námskeið um Veðurfræði og útivist í Samstöðusalnum á Þverbraut 1 á Blönduósi miðvikudaginn 26. október kl 18:00 - 22:00. Kennd verða áhrif fjalla og landslags á veður, einkum vinda, úrkomu og skýjafars.

Farið er yfir megineinkenni veðurfars á Íslandi á öllum árstímum, hvernig hiti og vindur breytist með hæð. Þá er fjallað um jöklaveðráttu, skafrenning og megingerðir þoku. Leiðbeiningar eru gefnar um aðgengilegar veðurspár, hverjar gagnast vel og hverjar síður fyrir ferðalanga í misjöfnu veðri.

Vakin er athygli á því að stéttarfélögin Samstaða, SFR og Kjölur greiðanámskeiðið fyrir sína félagsmenn. Þó er nauðsynlegt að skrá sig og fer skráning fram í gegnum netfangið farskolinn@farskolinn.is eða í síma 455 6010.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir