Ekki verður um frekari uppbyggingu Olís hjá Bjarna Har

Eins og fram kom í frétt í Feyki sl. fimmtudag náðu Olíuverzlun Íslands, bæjaryfirvöld á Sauðárkróki og Heilbrigðisnefnd norðurlands vestra samkomulagi um framlengingu á núverandi starfsleyfi Olís við verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki. Eldsneytisafgreiðsla hófst því aftur í verslun Haraldar Júlíussonar en Heilbrigðisnefnd norðurlands vestra hafði um áramótin afturkallað leyfi verslunarinnar að selja eldsneyti.

,,Það er mjög ánægjulegt að samkomulag hefur náðst við yfirvöld á Sauðárkróki að starfsleyfi á eldsneytisafgreiðslu verður framlengt við Verslun Haraldar Júlíussonar þar til að varanleg lausn finnst. Við viljum þakka bæjaryfirvöldum á Sauðárkróki og Heilbrigðisnefnd norðurlands vestra fyrir gott samstarf í þessu máli,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands.

,,Við höfum um langt árabil verið að leita að nýrri staðsetningu fyrir eldsneytisafgreiðslu á Sauðárkróki en ekki hefur fengist viðunandi lausn í þau mál enn sem komið er. Við höfðum von um að geta látið fara saman nýja lausn og viðeigandi lok við verslun Haraldar Júlíussonar en þar hefur verið rekin eldsneytisafgreiðsla í tæp 90 ár. Það er hins vegar löngu ljóst af hendi bæjarfélagsins að um frekari uppbyggingu verði ekki að ræða við verslunina hans Bjarna Haraldssonar og því fyrirséð að við verðum að færa eldsneytisafgreiðsluna í nánustu framtíð," segir Jón Ólafur ennfremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir