Félagsmót Skagfirðings 12-13 ágúst
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
28.07.2016
kl. 15.28
Félagsmót Skagfirðings verður haldið 12- 13 ágúst, samhliða hinni árlegu landbúnaðarsýningu og bændahátíð, Sveitasælu.
Keppt verður í A-flokki, B-flokki, polla-, barna-, unglinga- og ungmenna-flokki, tölti T3, 150m, 250m skeiði og C-flokki (léttur
flokkur, sýnt tölt og/eða brokk og stökk). Sérstök forkeppni riðin. Forkeppni í gæðingakeppni fer fram á föstudag.
Skráning fer fram á Sportfeng.
Frítt skráningargjald í polla-, barna- og unglingaflokki,
en annars er skráningargjald 2000. krónur á grein.
Skráningu líkur kl. 24:00 þriðjudaginn 9. ágúst.
Nánar auglýst síðar
Mótanefnd
Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.