Fimm hlutu styrki úr Húnasjóði

Afhending styrkja úr Húnasjóði fór fram í Hlöðunni á Hvammstanga sl. fimmtudag. Mynd: Húnaþing.
Afhending styrkja úr Húnasjóði fór fram í Hlöðunni á Hvammstanga sl. fimmtudag. Mynd: Húnaþing.

Síðast liðinn fimmtudag voru afhentir styrkir úr Húnasjóði. Fór afhendingin fram á kaffihúsinu Hlöðunni á Hvammstanga en formaður byggðarráðs, Elín Jóna Rósinberg, afhenti styrkina. Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000.

Það er byggðarráð Húnaþings vestra sem úthlutar úr sjóðnum og var það gert á 912.fundi ráðsins þann 25. júlí sl. Styrkþegar að þessu sinni eru:

Guðríður Hlín Helgudóttir, nám til BA prófs í ferðamálafræði.
Kolbrún Arna Björnsdóttir, nám til BA prófs í japönsku máli og menningu
Kristrún Pétursdóttir, nám til BS prófs í næringarfræði
Sigrún Soffía Sævarsdóttir, nám til BS prófs í umhverfis- og byggingarverkfræði
Þorgrímur Guðni Björnsson, nám til BS prófs í íþróttafræði

Húnasjóður er sjóður sem hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir frá Ægissíðu á Vatnsnesi stofnuðu til að minnast Alþýðuskóla Húnvetninga en Ásgeir stofnaði skólann árið 1913 og stýrði honum til ársins 1919.

Þeim hjónum var mikið í mun að vestur Húnvetningar hefðu tækifæri til að mennta sig og auk þess að stofna Húnasjóð gáfu þau árið 1960 Háskóla Íslands 10.000 kr. gjöf til eins herbergis í fyrirhuguðum nýjum stúdentagarði . Herbergið skyldi nefnast Ægissíða og stúdent úr Vestur Húnavatnssýslu hafa forgangsrétt til að búa í herberginu.

Við sameiningu sveitarfélaga 2000 var Húnasjóður endurvakinn og ný skipulagsskrá rituð. Úthlutað er úr sjóðnum árlega og miðast fjármagn við framlag frá sveitarsjóði ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir