Framsókn og framfarasinnaðir í Húnaþingi vestra kynna lista sinn

Þessi skipa fjögur efstu sætin, f.v. Friðrik Már Sigurðsson, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Þorleifur Karl Eggertsson.
Þessi skipa fjögur efstu sætin, f.v. Friðrik Már Sigurðsson, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Þorleifur Karl Eggertsson.

B-listi Framsóknar og annarra framfararsinna í Húnaþingi vestra fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018 hefur verið birtur. Listinn, sem er skipaður sjö konum og sjö körlum, er talsvert breyttur frá síðustu kosningum og er þar mörg ný nöfn að finna. Elín R. Líndal sem lengi hefur skipað fyrsta sætið er nú í því 14. eða heiðurssæti listans. Oddviti listans nú er Þorleifur Karl Eggertsson, símsmiður, sem áður var í 14. sæti. Þrjú næstu sæti eru öll skipuð nýjum liðsmönnum, í öðru sæti er Ingveldur Ása Konráðsdóttir, þroskaþjálfi og bóndi, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi í því þriðja og í fjórða sætinu er Friðrik Már Sigurðsson, hestafræðingur.

Listann skipa eftirfarandi:

  1.  Þorleifur Karl Eggertsson, símsmiður
  2. Ingveldur Ása Konráðsdóttir, þroskaþjálfi og bóndi
  3. Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi
  4. Friðrik Már Sigurðsson, hestafræðingur
  5. Ingimar Sigurðsson, bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi
  6. Valdimar H. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi
  7. Sigríður Elva Ársælsdóttir, deildarstjóri
  8. Elín Lilja Gunnarsdóttir, bóndi
  9. Erla Ebba Gunnarsdóttir, bóndi
  10. Sigurður Kjartansson, bóndi
  11. Gerður Rósa Sigurðardóttir, bankastarfsmaður
  12. Eydís Bára Jóhannsdóttir, sérkennari
  13. Guðmundur Ísfeld, handverksbóndi
  14. Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir