Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi stilla upp á lista
Síðastliðinn laugardag hélt Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi aukakjördæmisþing í Tjarnarlundi í Saurbæ. Á þinginu var felld tillaga um að bjóða til tvöfalds kjördæmaþings sem fengi það verkefni að kjósa framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Þess í stað var ákveðið að kjósa uppstillingarnefnd sem mun kynna niðurstöður sínar á kjördæmisþingi sem haldið verður á Bifröst í Borgarfirði 3.-4. september næstkomandi. Húni.is greinir frá.
Á þinginu sl. laugardag lýsti Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og fyrsti þingmaður kjördæmisins því yfir að hann sæktist eftir að leiða listann áfram. Elsa Lára Arnardóttir, þriðji þingmaður flokksins í kjördæminu, sækist eftir öðru sæti.
Annar þingmaður flokksins, Ásmundur Einar Daðason, lýsti því yfir á þinginu að hann gæfi ekki kost á sér á listann en Jóhanna María Sigmundsdóttir, fjórði þingmaður flokksins, hafði gefið út hið sama.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.