Fríverslunarsamningar undirritaðir á Hólum í dag

Tveir fríverslunarsamningar verða undirritaðir á Hólum í Hjaltadal í tengslum við ráðherrafund fríverslunarsamtaka Evrópu á Sauðárkróki í dag, 25. júní. Annars vegar verður skrifað undir nýjan fríverslunarsamning EFTA við Ekvador og hins vegar verður uppfærður fríverslunarsamningur við Tyrkland undirritaður.

Pablo Campana Sáenz, utanríkisviðskiptaráðherra Ekvadors, skrifar undir fyrir hönd ríkisstjórnar Ekvador og Nihat Zeybekci, efnahagsmálaráðherra Tyrklands, af hálfu tyrkneskra stjórnvalda. Fyrir hönd EFTA undirrita þau Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem jafnframt stýrir fundinum, Aurelia Frick, utanríkisráðherra Liechtenstein, Torbjørn Røe Isaksen, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs og Johann N. Schneider-Amman, ráðherra efnahagsmála, menntunar og rannsókna í sambandsstjórn Sviss.

Áður en ráðherrafundurinn hefst munu þeir Guðlaugur Þór og Nihat Zeybecki eiga stuttan tvíhliða fund um ýmis málefni.

Fréttin hefur verið uppfærð. Sagt var í fyrirsögn að fríverslunarsamningar yrðu undirritaðir á Króknum en það var gert á Hólum í Hjaltadal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir