Gæðingamót Þyts og Neista

Frá gæðingamóti Þyts 2014/Mynd: Feykir.is
Frá gæðingamóti Þyts 2014/Mynd: Feykir.is

Þann 13. ágúst næstkomandi verður haldið sameiginlegt gæðingamót hestamannafélaganna Þyts og Neista. Mótið fer fram á Blönduósi og verður boðið upp á eftirfarandi flokka: A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, B-flokk áhugamanna, Ungmenni (18-21 árs á keppnisárinu), Unglingar (14-17 ára á keppnisárinu), Börn (10-13 ára á keppnisárinu), 100m skeið, 250 m brokk og Pollaflokk (9 ára og yngri á árinu).

Skráning er í gegnum mótasíðu Sportfengs. http://skraning.sportfengur.com/. Lokaskráningardagur er miðnætti þriðjudaginn 9.ágúst. Skráning polla sendist á netfangið thytur1@gmail.com. Skráning í B flokk áhugamanna verður þannig að knapar skrá sig í B flokk gæðinga og senda tölvupóst á thytur1@gmail.com til að láta vita að þeir ætli að skrá sig í áhugamannaflokkinn.

Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.500 kr. fyrir börn og unglinga 2.500 kr. Í kappreiðunum er skráningargjaldið 2.000 kr. á hest. Skráningargjöld greiðast inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 um leið og fólk skráir í gegnum skráningakerfið og viðkomandi keppandi fer þannig inn á ráslista.

Sjá má nánar um mótið á vef Þyts.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir