Gunnar Örn Jónsson skipaður í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 1. apríl næstkomandi og afhenti hún honum skipunarbréf í gær. Embættið var auglýst í janúar og rann umsóknarfrestur út 30. janúar. Níu manns sóttu um embættið og ein umsókn til viðbótar var dregin til baka.

Á vef innanríkisráðuneytisins  segir að Gunnar Örn Jónsson hafi útskrifast með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og öðlast málflutningsréttindi 2005. Hann hefur sótt ýmis námskeið hjá Lögregluskóla ríkisins og lokið námskeiði í aðgerðastjórnun almannavarna. Gunnar hefur m.a. starfað hjá sýslumanns- og lögreglustjóraembættinu á Selfossi og síðar lögreglustjóranum á Suðurlandi frá 2004, þar af sem staðgengill sýslumanns og síðar lögreglustjóra frá árinu 2008 og sem yfirmaður ákærusviðs embættisins frá 2015.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir