Hannaði burðarvirki í brú á Hvammstanga í starfsnámi

Nýja brúin á Hvammstanga sem er hið veglegasta mannvirki. Mynd: Birgir Karlsson.
Nýja brúin á Hvammstanga sem er hið veglegasta mannvirki. Mynd: Birgir Karlsson.

Aron Sölvi Ingason, nemi í byggingartæknifræði við HRNýtt mannvirki reis fyrir skemmstu á Hvammstanga og sendi Eiríkur Sigurðsson, forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs við Háskólann í Reykjavík fréttt af því til Feykis.

Fyrir stuttu var reist ný brú á Hvammstanga, á milli grunnskóla bæjarins og leikskólans. Það er Aron Sölvi Ingason sem á heiðurinn af hönnun stærða límtrésbita, stífingu fyrir brúna og stálfestinga. Hann er nemi í byggingartæknifræði og brúarhönnunin var verkefni hans í starfsnámi hjá Límtré Vírnet en viðamikið starfsnám er skyldufag í BSc-námi í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Brúna hannaði Arnar Birgir Ólafsson landslagsarkitekt hjá Teiknistofu Norðurlands en um smíði og uppsetningu sá Límtré Vírnet.

Aron segir hönnun brúarinnar hafa verið skemmtilegt verkefni þó það hafi verið krefjandi. „Þetta verkefni var þó frekar óvenjulegt þar sem um er að ræða yfirbyggða brú sem á að vera hægt að keyra yfir, á til dæmis sláttuvélum eða snjóruðningstækjum, svo álagið var mikið og öðruvísi heldur en ég hafði áður unnið með. Brúin breyttist líka í ferlinu, það var verið að lengja hana og breyta breiddinni á henni sem varð til þess að það þurfti að hanna marga parta af henni oftar en einu sinni.”  

Aron er nýbúinn að skila lokaverkefninu sínu og er að klára BSc-námið í byggingartæknifræði. Brúarhönnunin er gott dæmi um hversu mikið nemendur læra af raunverulegum verkefnum. „Ég lærði enn betur að skilgreina álag á óvenjuleg mannvirki ásamt því að auka þekkingu mína almennt á burðarþolshönnun.“ Þess má geta að lokum að Aron hefur enn ekki gengið yfir brúna á Hvammstanga. „Ég á það eftir en ég stefni að því að gera á næstunni.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir