Herra Klopp að búa til skemmtilegt lið

Kristján Grétar og Neil Ruddock.
Kristján Grétar og Neil Ruddock.

Króksarinn Kristján Grétar Kristjánsson svarar hér spurningum í Liðinu mínu en vinur hans Viktor Guðmundsson skoraði á hann fyrir stuttu. Kristján Grétar segist vinna sem stuðningsfulltrúi Sædísar og Hrefnu hjá FISK Saefood en þar kemur gamla vinnan að góðum notum hjá honum. Liverpool er uppáhaldsliðiðmog segist hann vita að það sé erfitt fyrir Viktor vin sinn þar sem þeir vinirnir spiluðu gúrku upp á það hvor fengi Liverpool sem sitt lið. „Ég vann!“, segir kristján.

Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Herra Klopp er að búa til mjög skemmtilegt lið og ég spái því að við endum í 4. sæti.

Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Jà, er frekar sáttur en við höfum átt í erfiðleikum með minni liðin eins og ManU og fleiri. Verðum að laga það.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? - Neil Ruddock, ekki spurning, enda einn mesti meistari sem ég hef hitt.

Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já, fór à Liverpool -ManU 1999-2000 sem endaði 2-0 auðvitað.

Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já. Áritaða mynd af Steven Gerrard til mín þar sem hann er með meistaradeildarbikarinn. Áritaða treyju af liðinu 2013/14, áritaða treyju og mynd af Neil Ruddock, áritaða bók frá Didi Hamann, áritað dagatal frá Sammy Lee, fimm treyjur og margt fleira.

Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Það gengur mjög vel held ég bara en ekki eins mikill áhugi á fótbolta og hjá pabbanum.

Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Er sammála Viktori vini mínum þar. Er ekki í boði.

Uppáhalds málsháttur? -Ég og Magnús Gauti vinur minn eigum einn uppáhalds,  sem er: Fötin skapa manninn.

Einhver góð saga úr boltanum? -Þrymur kemur upp í hugann en held ég verði að segja þegar ég horfði á leik með Neil Ruddock þar sem nokkrir bjórar fóru niður og mikill hlátur.  Hann er mjög hress og skemmtileg týpa.

Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? Uppáhalds er þegar ónefndur læknir og mikill vinur minn sendi mér mynd af sér í Liverpool treyju á Facebook en hann er einn harðasti ManU maður sem ég þekki. Hann fattaði svo hvað hann hafði gert og bað mig að eyða henni. En ég lét framkalla 40 eintök af myndinni og gaf samstarfsfólki okkar í jólagjöf svo myndin er til á mörgum skrifstofum í dag.

Spurning frá Viktori Guðmunds: -Hver er besti þjálfari Liverpool frá upphafi?

 

Svar... -Það er Bill Shankly, ekki spurning en vona að Hr. Klopp verði það í framtíðinni.

Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Vil skora à Sædísi Bylgju en hún heldur með ManU greyið. 

Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hver er uppàhalds Liverpool leikmaðurinn þinn?

Áður birst í 10. tbl. Feykis 2017

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir