Hetjusaga Hagalíns um Moniku á Merkigili endurútgefin

Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið bókina Konan í dalnum og dæturnar sjö. Bók þessi kom út árið 1954 og var söguhetjan Monika Helgadóttir þá 53 ára að aldri. Hún bjó þá og um áratugi þar á eftir ekkja á sínu afskekkta býli með sjö dætrum og einkasyni. Í sex áratugi hefur bókin Konan í dalnum og dæturnar sjö verið umsetin í fornbókaverslunum og á bókasöfnum. Hún nýtur nú meiri vinsælda en nokkur önnur bók Guðmundar G. Hagalín.

Í meðförum Hagalíns verður Monika á Merkigili ekki aðeins barnmörg húsfreyja í sveit heldur táknmynd íslensku sveitakonunnar. Konunnar sem borið hefur þjóð sína í móðurörmum og umvafið hana með fórnfýsi og kærleika öld eftir öld.

Konan í dalnum og dæturnar sjö kemur nú út í nákvæmri eftirgerð fyrri útgáfu með stuttum eftirmála sem unninn er í samvinnu við Skarphéðin, einkason Moniku.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir