Kaffi Krókur, Mælifell og Ólafshús skipta um eigendur

Ólafshús á Sauðárkróki.
Ólafshús á Sauðárkróki.

Gengið hefur verið frá sölu á veitinga- og skemmtistöðunum Kaffi Krók, Mælifelli og Ólafshúsi á Sauðárkróki. Það eru þau Selma Hjörvarsdóttir og Tómas Árdal sem kaupa staðina af Kristínu Elfu Magnúsdóttur og Sigurpáli Aðalsteinssyni, en fyrirtæki þeirra, Vídeósport, hefur rekið þessa staði um árabil. Fyrir eiga þau Selma og Tómas Arctic Hotels á Sauðárkróki.

Tómas sagði í samtali við Feyki nú áðan að þau tækju við Kaffi Krók, Mælifell og Ólafshúsi um áramót. Hann sagði ekki stefnt á neinar sérstakar breytingar á rekstrinum til að byrja með, enda hefði rekstur þessara staða verið með miklum ágætum. „Þó eru geta alltaf orðið einhverjar breytingar með nýju fólki, það verður bara að koma í ljós. Við teljum þetta góða viðbót við okkar rekstur og þetta leggst bara vel í okkur,“ sagði hann. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir